• 00:00:08Alvarlegasta hópsýkingin í fimm ár
  • 00:08:02Einn á vakt ei meir
  • 00:14:47Grátandi nemendur og pólitísk átök

Spegillinn

Alvarleg ecoli-hópsýking, læknisþjónusta á landsbyggðinni, væringar innan norsku ríkisstjórnarinnar

27 börn hafa greinst með eiturmyndandi Ecoli í hópsýkingu á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Verið er rannsaka hvernig börnin veiktust en grunurinn hefur einna helst beinst nautahakki. Þetta er alvarlegasta hópsýking af þessu tagi frá því fyrir fimm árum, og þá sem voru það börn sem veiktust. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið og ræddi við Vigdísi Tryggvadóttur sérgreinadýralækni hjá Matvælastofnun.

Starf eða embætti héraðslæknis er ekki jafn eftirsótt og það eitt sinn var. Í vikunni bárust fréttir af því sveitarfélög á Vesturlandi vilji leggja heilbrigðisstofnunum lið við manna lítt eftirsóttar stöður og vinnuálagið er til umræðu í kjarabaráttu lækna. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Sigurð Einar Sigurðsson framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Steinunni Þórðardóttur formann Læknafélagsins.

Ásakanir um pólitískt vændi fjúka milli stjórnarflokkanna. Forsætisráðherra skammar dómsmálaráðherrann fyrir ljótt orðbragð. Þannig er staðan við ríkisstjórnarborðið í Ósló. En dugar þetta til stjórnin falli ári áður en kjörtímabili lýkur rétt eins og gerðist á Íslandi? Gísli Kristjánsson, fréttaritari í Ósló, er með meira um ástandið í konungsríki frænda okkar austan Atlantsála.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Frumflutt

24. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,