• 00:00:07Mjókkar á munum vestra
  • 00:09:18Lét Lilja undan þrýstingi frá HBO?

Spegillinn

Spennan magnast vestanhafs og af hverju True Detective kom til Íslands

Kosningabaráttan fyrir forsetakjör í Bandaríkjunum eftir tvær vikur harðnar. Litlu munar á frambjóðendum Demókrata og Repúblikana og þeir keppast við hópum á kjörstað sem gætu ráðið úrslitum. Umdeild mál eins og þungunarrof setja mark sitt á kosningabaráttuna en efnahagsmálin eru þó það sem flestir kjósendur segja ráði vali sínu. Anna Kristin Jónsdóttir ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur.

Þá verður sagt frá því hvað gerðist þegar ráðamenn fengu upplýsingar um Ísland kæmi til greina sem heppilegur tökustaður fyrir True Detective-þáttaröðina Night Country og HBO vildi loforð um endurgreiðslu uppá 35 prósent.

Frumflutt

22. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,