• 00:00:09Umboðsmaður Alþingis kveður
  • 00:16:04Enn hótar Pútín kjarnorkuárásum

Spegillinn

Umboðsmaður Alþingis kveður, Pútín hótar kjarnorkuvopnum

Skúli Magnússon lætur af störfum sem umboðsmaður Alþingis á þriðjudag og sest í dómarasæti í Hæstarétti Íslands. Við starfi hans tekur Kristín Benediktsdóttir sem Alþingi kaus í dag. Skúli hefur sem umboðsmaður slegið á putta ráðherra, meðal annars í Íslandsbankamálinu, sem varð til þess þáverandi fjármálaráðherra sagði af sér - þó með þeim orðum hann væri ósammála áliti umboðsmanns. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Skúla.

Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti er í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum, þar sem hann hittir Joe Biden Bandaríkjaforseta í dag. Í aðdraganda fundarins hét Biden auknum stuðningi við Úkraínu. Hinumegin Atlantshafsins ítrekaði Vladimír Pútín Rússlandsforseti óbeinar en illa duldar hótanir sínar um beita kjarnorkuvopnum í stríðinu gegn Úkraínu. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Frumflutt

26. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,