• 00:00:08Fjármálastöðugleikinn
  • 00:05:48Úrskurðarnefndir um upplýsingamál
  • 00:13:33Norðmenn deila við ESB um fisk

Spegillinn

Fjármálastöðugleiki, tafir á upplýsingagjöf stjórnvalda ámælisverðar og deilur Norðmanna og Evrópusambandsins

Vextir verða ekki lækkaðir nema verðbólga hjaðni segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hún stendur í sex prósentum en markmiðið sem er stefnt er 2,5%. Hann segir hækkandi fjármagnskostnaður geti haft áhrif á greiðslubyrði vissra hópa en almennt eiginfjárstaða heimila góð og vanskil hafi lítið aukist.

Umboðsmaður Alþingis gerði í vikunni athugasemdir við hversu lengi úrskurðarnefnd um upplýsingamál væri kveða upp úr úrskurði sína. Tafirnar væru ekki réttlætanlegar og þær gætu í ýmsum tilvikum leitt til þess þær upplýsingar sem óskað hefði verið eftir yrðu meira eða minna þýðingarlausar.

Harðar deilur Norðmanna við Evrópusambandið um fiskveiðikvóta gætu leitt til þess aðgangur fyrir norskar sjávarafurðir verði takmarkaður einhverju leyti. Sjávarútvegsráðherrar aðildarríkja ESB komu saman í Brussel í byrjun vikunnar þar sem skarpar línur voru lagðar fyrir komandi viðræður.

Frumflutt

25. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,