Spegillinn

Fjárlagafrumvarp, sameiningarmál Skorrdælinga, ofsóknir á hendur rússneskum vísindamönnum

Sigurður Ingi Jóhannsson kynnir á morgun , klukkan níu, sitt fyrsta fjárlagafrumvarp. Þetta verður söguleg stund í íslenskri stjórnmálasögu því Sigurður Ingi er fyrsti Framsóknarmaðurinn í nærri hálfa öld til vera fjármálaráðherra. Freyr Gígja Gunnarsson reifar það helsta sem búast við í frumvarpinu og ræðir það við Finnbjörn Hermannsson, formann ASÍ.

Skorradalshreppur er eitt af fámennustu sveitarfélögum landsins og hefur ítrekað hafnað sameiningu við stærri sveitarfélög. Meirihluti hreppsnefndar samþykkti hefja formlegar sameiningarviðræður við Borgarbyggð í júlí en stjórnsýslukæra og undirskriftasöfnun íbúa gætu sett þær í uppnám. Gréta Sigríður Einarsdóttir fjallar um málið og ræðir við Jón Eirík Einarsson, oddvita Skorradalshrepps.

Rússnesk yfirvöld, með leyniþjónustuna FSB í broddi fylkingar, hafa á síðustu árum handtekið, ákært og dæmt á annan tug vísindamanna í margra ára fangelsi vegna meintra landráða. Vísindamennirnir eru sakaðir um hafa deilt háleynilegum vísindagögnum með útsendurum erlendra ríkja. Þeir - og verjendur þeirra - benda á þeir komi hvergi nærri hönnun þeirra hátæknvopna sem þeir eru sakaðir um tala óvarlega um í annarra eyru, og hafi einungis starfað við grunnrannsóknir og fræðastörf á sínu sviði. Þeir hafi einungis rætt viðtekin vísindi og alþekktar kenningar á ráðstefnum erlendis, en engin ríkisleyndarmál. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred.

Frumflutt

9. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,