• 00:00:00Kynning
  • 00:00:14Kaldur blettur í hitnandi heimi
  • 00:05:33Google fær á sig dóm
  • 00:09:26Kveðja

Spegillinn

Kaldur blettur í hitnandi heimi, tímamótadómur yfir Google

Kuldapollur, eða blár blettur, sem myndast hefur í hafinu suður af landinu er ein helsta ástæða þess þau methlýindi sem geisað hafa á Jörðinni undanförnu hafa mestu sneitt hjá Íslandi í sumar. Kuldapollurinn er afleiðing óstöðugleika í svokallaðri veltihringrás hafstrauma, eða AMOC, einskonar blöndunartækjum hafsins sem blanda heitum yfirborðssjó við kaldandjúpsjó. Halldór Björnsson fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofunni, segir afar ólíklegt téður kuldapollur verði varanlegur. Það gerist aðeins ef loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á veltihringrásina fara yfir ákveðinn vendipunkt og breytingarnar verði óafturkræfar. Enn séu engin merki um komið slíkum vendipunkti og því mun líklegra breytingarnar gangi til baka, segir Halldór. Það breytir því ekki, jafnvel í vísindatímaritum hafa birst stríðsfyrirsagnir á þá leið, veltihringrásin geti hrunið fljótlega og það á örfáum árum. Linda Blöndal ræðir við Halldór.

Bandarískur alríkisdómstóll hefur komist þeirri niðurstöðu tæknirisinn Google hafi náð eða í það minnsta viðhaldið yfirburðastöðu leitarvélar sinnar á markaði með ólögmætum hætti - misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Dómurinn féll eftir fjögurra ára málaferli. Þau snerust um Google hefði greitt stórum tæknifyrirtækjum á borð við Apple og Samsung milljarða dollara fyrir beina netleit í tölvum og snjallsímum sjálfkrafa leitarvél Google. Þetta hafi fyrirtækið svo nýtt sér til afla meiri auglýsingatekna, ekki bara með því fjölga auglýsingum heldur líka hækka verðið á þeim umfram það sem eðlilegt gæti talist á frjálsum markaði. Hallgrímur Indriðason segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

9. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,