• 00:00:17Gagnaver úr rafmynt í gervigreind
  • 00:06:46Hver er Tim Walz?

Spegillinn

Breytt hlutverk gagnavera, Tim Walz, varaforsetaefni Kamölu Harris

Þrjú fyrirtæki, Borealis Data Center, atNorth og Verne Global, reka sjö gagnver hér á landi. Vern rekur eitt, atNorth þrjú og Borealis þrjú. Miklar breytingar eru verða á starfsemi gagnaveranna - þau eru færa sig úr hinum umdeilda rafmyntagreftri. Ragnhildur Thorlacius ræðir þessa þróun við Bergþóru Halldórsdóttur, einn stjórnenda Borealis, sem rekur gagnaver við Korputorg, Fitjar og Blönduós.

Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota, verður varaforsetaefni Kamölu Harris í bandarísku forsetakosningunum í nóvember. Walz sextugur, árinu eldri en Harris, fæddur og upp alinn í smábæjum í Nebraska. Hann er kvæntur, tveggja barna faðir með 24 ára feril í þjóðvarðliði Bandaríkjahers baki. Hann starfaði lengi sem gagnfræða- og menntaskólakennari áður en hann var kosinn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings 2006. Þar sat hann til 2018, en þá var hann kjörinn ríkisstjóri Minnesota. Hann þykir frjálslyndur, líklega frjálslyndasti úr þeim hópi karla sem líklegastir þóttu til verða varaforsetaefni Harris.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Frumflutt

6. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,