• 00:00:26Orkuskiptin í Evrópu
  • 00:04:15Klukkuþreyta

Spegillinn

Nýorka toppar jarðefnaeldsneyti í ESB, klukkuþreyta og svefnmynstur ungmenna

Orkuskipti eru forsenda þess Evrópusambandið - og Ísland reyndar líka - nái loftslagsmarkmiðum sínum um kolefnishlutleysi fyrir 2050. Þótt nokkuð vanti upp á þessi umskipti gangi nógu hratt fyrir sig hefur góður árangur náðst á síðustu misserum og fyrstu sex mánuðir þessa árs voru fyrsta hálfa almanaksárið, þar sem meira var notað af vind- og sólarorku heldur en jarðefnaeldsneyti við framleiðslu á rafmagni, í Evrópusambandinu sem heild. Ævar Örn Jósepsson rýnir í nýja skýrslu um orkuskipti og þróun orkumála á meginlandi Evrópu.

Stærstur hluti ungmenna nær ekki ráðlögðum nætursvefni fyrir sinn aldur samkvæmt nýrri svefnrannsókn. Aðeins um 15% ungmenna teljast vera nátthrafnar eða morgunhanar en restin flokkast sem blönduð týpa. Ólöf Rún Erlendsdóttir ræðir við Ingibjörgu Magnúsdóttur, sem stóð rannsókninni.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Frumflutt

30. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,