Spegillinn

Forsetaframboð, Georgía og kaffihús á Þingvöllum

16. maí 2024

Viðtöl Spegilsins við frambjóðendur til embættis forseta Íslands halda áfram. Í þessum þætti ræðir Freyr Gígja Gunnarsson við Höllu Hrund Logadóttur.

Utanríkisráðherrar Íslands og þriggja Evrópusambandsríkja; Eistlands, Lettlands og Litáens, héldu til Georgíu í gær til ræða við ráðamenn úr stjórn og stjórnarandstöðu og sýna samstöðu með þeim sem mótmælt hafa umdeildum lögum sem Georgíuþing samþykkti í vikunni. Rætt er við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel, um afstöðu ESB til málsins og líkindi ástandsins í Georgíu með ástandinu í Úkraínu 2014.

Þingvallanefnd hefur forkaupsrétt öllum sumarhúsum innan þjóðgarðsins sem fara á markað. Oftast eru þetta gömul og illa farin hús sem flest eru fjarlægð og ekkert byggt í staðinn. Það vakti því nokkra athygli þegar nefndin ákvað síðasta sumar nýta forkaupsrétt einu elsta sumarhúsi þjóðgarðsins, en rífa það ekki - minnsta kosti ekki strax. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Einar Ágúst Sæmundsen þjóðgarðsvörð um hugmyndir sem uppi eru um opna aftur kaffihús í þjóðgarðinum.

Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

16. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,