• 00:00:00Kynning
  • 00:00:31Halla Tómasdóttir
  • 00:09:07Þórdís Kolbrún í Georgíu
  • 00:14:51Svalbarði - sala lands
  • 00:19:15Kveðja

Spegillinn

Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi, utanríkisráðherra í Georgíu og áhyggjur Norðmanna af eignarhaldi Fagurfjarðar á Svalbarða

15. maí 2024

Spegillinn hefur tekið og birt viðtöl við frambjóðendur til embættis forseta Íslands og mun gera það áfram. þessu sinni ræðir Freyr Gígja Gunnarsson við Höllu Tómasdóttur.

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð er í opinberri heimsókn í Tiblisi í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litáens. Tilgangurinn er styðja georgísku þjóðina í viðleitni sinni til auka samstarf við Evrópuríki, jafnt innan ESB sem utan. Tilefnið er ekki síst umdeild lagasetning um fjármögnun fjölmiðla og félagasamtaka, sem talin er grafa undan lýðræðinu og hefta tjáningar-, fjölmiðla- og félagafrelsi í landinu, fram úr hófi. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræðir við Þórdísi.

Norðmenn eru í öngum sínum vegna þess óvinveitt ríki gætu klófest síðasta fjörðinn sem enn er í einkaeigu á Svalbarða. Núna fer dularfull kona af rússneskum uppruna með forræði yfir landinu við fjörðinn og getur valið úr kaupendum. Gísli Kristjánsson segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

15. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,