Spegillinn

Einföldun á örorkulífeyriskerfinu, kviðdómur í máli gegn Donald Trump og kjör eldri borgara

Í fjármálaáætlun til næstu ára er 18 milljörðum króna ráðstafað í breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem taka eiga gildi í september 2025, verði frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, samþykkt. Ætlunin er einfalda kerfið og tryggja samfellu , hvetja til atvinnuþátttöku og draga úr skerðingum og hækka frítekjumörk. Vigdís Jónsdóttir forstjóri VIRK segir margt til bóta og býst við breytingarnar hafi mikil áhrif á starfsemi VIRK.

Réttarhöld hófust í dag yfir Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, ekki reyndist þrautalaust skipa í kviðdóm vestra, hvaða tólf kviðdómendur urðu fyrir valin og munu sakfella eða sýkna Trump.

Vakning hefur orðið í umræðu um kjör og réttindi eldri borgara á Akureyri og Björn Snæbjörnsson, fyrrverandi formaður Starfsgreinasambandsins og stéttarfélagsins Einingar-Iðju segir afar nauðsynlegt félög eldri borgara um allt land hleypi krafti í báráttuna.

Frumflutt

22. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,