Þorskur, tjónaskrá í Úkraínu og sendiráð í Sierra Leone
24. janúar 2024
Íslenski þorskstofninn er nokkuð sterkur og hefur verið um alllanga hríð, öfugt við flesta þorskstofna aðra í Norður-Atlantshafi. Nýleg rannsókn Hafrannsóknastofnunar leiddi í ljós að honum má skipta gróflega í minnst tvær stofneiningar. Í erlendri rannsókn sem birt var í fyrra kemur fram að þorskstofnar í Norður-Atlantshafi séu um 20 talsins og að af þeim séu aðeins tveir í nógu góðu formi til að óhætt sé talið að veiða úr þeim svo nokkru nemi; sá íslenski og svo stofninn í Barentshafi. Ævar Örn Jósepsson ræddi þessar niðurstöður við Jónas Pál Jónasson, sviðsstjóra botnsjávarsviðs á Hafrannsóknastofnun.
Búast má við milljónum skráninga í tjónaskrá vegna stríðsins í Úkraínu, segir Róbert Spanó stjórnarformaður skrárinnar. Almennir borgarar eiga sjálfir að geta skráð tjón sitt á netinu. Ragnhildur Thorlacius ræðir við Róbert.
Stutt er í fomlega opnun nýjasta sendiráðs Íslands, í Freetown, höfuðborg Afríkuríkisins Síerra Leóne. Ásdís bjarnadóttir, forstöðukona sendiráðsins, segir mörg spennandi verkefni fyrir höndum á komandi misserum. Þorgils Jónsson ræddi við hana.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Frumflutt
24. jan. 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.