Spegillinn

Dómar mildaðir í Rauðagerðismáli, öfgar í sjávarhita og lóðaskortur

Hæstiréttur mildaði í dag dóma yfir sakborningum í Rauðagerðismálinu. Þar á meðal var dómur yfir konu styttur um ellefu ár. Valur Grettisson tók saman og talaði við Karl Georg Sigurbjörnsson, verjanda konunnar.

Útlit er fyrir aldrei hafi meira af jarðefnaeldsneyti verið brennt á vegum landsins en í ár. Loftslagsráð telur stjórnsýsla loftslagsmála þurfi fara á neyðarstig. Óskhyggja dugir ekki til segir Halldór Þorgeirsson, formaður ráðsins. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hann.

Hátt í þrjátíu eru slasaðir og fjórir þeirra alvarlega eftir sprengingu í húsi í fimmta hverfi í París. Ekki er vitað hvað olli henni. Rebekka Líf Ingadóttir sagði frá.

Miðstjórn ASÍ harmar þá stefnu sem umræða um fólk á flótta hefur tekið undanfarna daga. Finnbjörn A. Hermannsson forseti sambandsins segir þekkingu fólksins ekki metna verðleikum. Karitas M. Bjarkadóttir talaði við hann.

Sólin var hæst á lofti, á norðurhveli jarðar, rétt fyrir þrjú í dag, á sumarsólstöðum. Sólin færist aftur suður eftir sólbaugnum og lækkar á lofti á ný. Ástrós Signýjardóttir sagði frá.

----------

Norðan við Ísland er hafið óvenju kalt og hafís mjög nálægt landi á mun stærra svæði en vant er en sunnan við landið hefur hvert hitametið fallið af öðru. Halldór Björnsson hópstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands segir ekkert vafamál orsakavaldurinn hnattræn hlýnun þó framvindan enn óljós. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hann.

Stjórnvöld ætla tvöfalda stofnframlög til íbúða fyrir eigna- og tekjulága en aðgerð leysir ekki vandann á húsnæðismarkaði mati Ragnars Þórs Ingólfssonar formanns VR - það skorti fyrst og fremst lóðir. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann.

Stýrivaxtahækkun er yfirvofandi í Bretlandi á morgun, tólfta mánuðinn í röð. Ekkert gengur verðbólgunni niður. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í Jeremy Hunt fjármálaráðherra Breta, Keir Starmer leiðtoga Verkamannaflokksins og Rishi Sunak forsætisráðherra.

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Frumflutt

21. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,