Spegillinn

Skuldir vaxa, jarðgöng, flugsamgöngur, eldri borgarar og Tina Turner

Spegillinn 25. maí 2023

Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Umboðsmaður skuldara segir embættið búa sig undir fleiri leiti liðsinnis stofnunarinnar þegar nýjustu vaxtahækkanir Seðlabankans fari bíta. þegar húsnæðiskostnaður hefur vaxið mikið, leiti margir í dýr og óhagstæð yfirdráttarlán og smálán til endum saman. Rætt við Ástu Sigrúnu Helgadóttur.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra fer fram á greinargerð frá Almannavörnum, þar sem tíundað er hvers vegna stofnunin vill hætta við Fjarðarheiðargöng og bora frekar göng frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar og Neskaupstaðar, og svo frá Mjóafirði upp í Hérað.

Icelandair hyggst í haust bjóða upp á flug milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar í tengslum við millilandaflug.

Héraðsdómur Reykjaness sýknaði Íslandsbanka af sex milljóna króna kröfu manns sem taldi bankann hafa ofrukkað vexti.

Framleiðsla á skógarplöntum er hefjast á Héraði á eftir fimm ára hlé. Rætt við Ragnar Atla Tómasson.

Snorri Stefánsson bakari á Sauðárkróki er farinn baka brauð ofan í bæjarbúa á ný, tíu dögum eftir bakaríið stórskemmdist.

----

aðgerðaáætlun stjórnvalda um þjónustu við eldra fólk næstu fimm árin, eða frá þessu ári til ársloka 2027, ber yfirskriftina Gott eldast og er unnin af verkefnastjórn um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk. Bæta á þjónustuna og auðvelda fólki nýta sér hana og búa lengur heima hjá sér. Rætt við Berglindi Magnúsdóttur, formann verkefnisstjórnar.

Bandaríkjamenn hafa siglt flugmóðurskipinu Gerald Ford, stærsta stríðsdreka sínum, nánast alveg upp í landsteina innst í Óslóarfirði. Þetta er hundrað þúsund tonna ferlíki og Rússar líta á ferð þess sem ögrun og tilefnislausa ógn við sig. Gísli Kristjánsson talar frá Noregi.

Háir sem lágir hafa minnst söngkonunnar Tinu Turner á samfélagsmiðlum frá því fréttir bárust af andláti hennar. Drottning, átrúnaðargoð, fyrirmynd og goðsögn eru rauði þráðurinn í þessum færslum. Ásgeir Tómasson stiklar á stóru í merkilegri sögu Tinu Turner.

Frumflutt

25. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,