Spegillinn

Fordómar í garð foreldra með fötlun, kafbátar og orkuskipti

Dómsmálaráðherra segir álit umboðsmanns Alþingis um rafbyssuvæðingu lögreglunnar ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ráðherra. Hann er ósammála álitinu um bera hefði þurft málið undir ríkisstjórn.

Embætti landlæknis hefur svipt sálfræðing starfsleyfi eftir hann gerðist sekur um alvarleg brot í starfi. Hann er meðal annars sagður hafa gert ADHD-greiningar sem hvergi fengust viðurkenndar.

Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn formaður VR. Hann segist vilja mæta kröfum um breytingar innan félagsins.

Foreldrar með fötlun mæta fordómum og ekki nægan stuðning. Þetta segir sérfræðingur Þroskahjálpar. Ríkari kröfur séu gerðar til uppeldis hjá þeim en öðru fólki.

Íslensku barnabókmenntaverðlaunin verða ekki veitt í ár þar sem ekkert handritanna sem bárust þykir nógu gott. Starfandi formaður Rithöfundasambandsins segir lítið upp úr skrifunum hafa.

------

Foreldrar með fötlun mæta miklum fordómum í samfélaginu og ekki nægan stuðning. Dæmi eru um konum með þroskaskerðingu séu gefnir hormónar án þeirra vitundar til koma í veg fyrir þungun. Í Kveik í gær var rætt við ungan mann sem ólst upp hjá seinfærum foreldrum. Þau mættu miklum fordómum þegar von var á drengnum fyrir um 20 árum, fullyrt var hann myndi erfa fötlun foreldra sinna og þau voru hvött til gefa drenginn frá sér. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir sérfræðingur hjá Þroskahjálp og doktorsnemi í þroskaþjálfafræði segir þessi viðhorf enn við lýði. Hún segir ekki til nein sérstök tölfræði um fjölda seinfærra foreldra. Mörg dæmi séu um seinfærir foreldrar séu hvött til gefa frá sér börn sín.

Rússar og Kínverjar fordæma þá ákvörðun Breta og Bandaríkjamanna sjá Áströlum fyrir kjarnorkuknúnum kafbátum á næstu áratugum. Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti formlega samkomulag um samstarfið í San Diego í Kaliforníu. Viðstaddir voru forsætisráðherrar Ástralíu og Bretlands, þeir Anthony Albanese og Rishi Sunak. Biden sagði til samstarfsins væri stofnað til tryggja frelsi, velmegun og öryggi ríkja á Asíu-Kyrrahafssvæðinu með tækifærum fyrir alla.

Á sama tíma og stefnt er orkuskiptum þá lækkar lítið í stórum olíutunnum landsins. Olíuinnflutningur virðist ekki vera minnka, þvert á móti. Kallað hefur verið eftir aukinni raforkuframleiðslu og lagarammi verði gerður skýr um raforkuframleiðslu, og þá sér í lagi vindorkuna sem aukinn áhugi er fyrir. Stjórnmálamenn hafa verið hvattir til aðgerða í raforkumálum, raforkukerfið orðið fullnýtt og virkja þurfi meira - allt til orkuskipti séu ekki orðin tóm. Þetta k

Frumflutt

15. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,