Spegillinn

Þáttur 1115 af 1550

Spegillinn 28. febrúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Ríkisstjórnin telur ekki tímabært grípa inn í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins með lagasetningu. Enn er vonast til deilan leysist við samningaborðið. Alma Ómarsdóttir ræddi við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og Guðmund Inga Guðbrandsson félags og vinnumarkaðsráðherra. ,

Töluvert útbreidd sótthræðsla er hér á landi við kórónuveirusmit. Sigríður Dóra Magnúsdóttir framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hvetur fólk til lifa eðlilegu lífi og hlusta ekki á rangar upplýsingar. Kristín Sigurðardóttir talaði við hana.

Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði og rannsóknastjóri Rannsóknaseturs um smáríki segir þjóðaröryggisstefnu, sem samþykkt var á Alþingi í dag, ekki trúverðuga meðan ekki tekið inn nýtt áhættumat þar sem hernaðarlegt mikilvægi Íslands hafi aukist í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hann.

Rannsókn er hafin á dularfullum veikindum stúlkna í Íran. Grunsemdir eru um öfl sem leggjast gegn frelsi og menntun kvenna hafi dælt eitri inn í skólastofur. Dagný Hulda Erlendsdóttir tók saman.

Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja mörgum spurningum enn ósvarað varðandi söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Meðal annars hvort fjármálaráðherra hafi mátt selja föður sínum hlut í bankanum. Höskuldur Kári Schram tók saman. Hildur Sverrisdóttir (D) flutti álit meirilhluta stjórnskipunar og eftirlitsnefndar á Alþingi. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) telur þörf á sérstakri rannsóknarnefnd Alþingis um söluna.

Danska þingið samþykkti í dag afleggja kóngsbænadag -- frídag sem hefur verið við lýði í rúmar þrjár aldir. Alexander Kristjánsson sagði frá.

----------------

Rauða strikið í samningunum sem gerðir voru fyrir jól var hinn skammi tími samninganna, segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins sem segir sem betur fer hafi náðst semja þá. Samningar hafi skilað þeim sem þeir eiga við kauphækkunum til vega upp á móti þeim miklu verðhækkunum sem hafi dunið á undanförnu. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann.

Brotalamir eru í regluverki lagareldiss hér á landi. skýrsla tekur undir áhyggjur Ríkisendurskoðunar sem þegar eru fram komnar. Fiskeldi á Íslandi margfaldast á næstu árum gangi framtíðarspá skýrslunnar eftir. Bjarni Rúnarsson ræddi við Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra um lagareldi.

Frumflutt

28. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,