Spegillinn

Vinnudeila SA og Eflingar harðnar enn og Joe Biden í Úkraínu

Spegillinn 20. febrúar 2023

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra segir ekki hafa verið rætt í ríkisstjórn setja lög á kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segist hafa þungar áhyggjur af stöðu mála. Deilan orðin ein harðasta í áratugi, þetta sögðu þau aðspurð á Alþingi af stjórnarandstöðunni. Höskuldur Kári Scharm tók saman.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið ætli ekki tæma vinnudeilusjóð sinn til axla ábyrgð á verkbanni og sturlun SA.

Verðmunur á matvöru eykst við samanburð á kílóverði. Meðalverð á 113 vörutegundum var lægst í Bónus en hæst í Iceland. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá.

Landsvirkjun ætlar greiða ríkinu tuttugu milljarða króna í arð fyrir síðasta ár, samkvæmt tillögu stjórnar. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar segir stærsta áhrifaþátt bættrar afkomu fyrirtækisins vera endurnýjaða samninga við stórnotendur. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann.

Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, hefur sagt starfi sínu lausu og óskað eftir leyfi frá störfum bæjarfulltrúa út þetta ár

Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, formaður bæjarstjórnar í Fjarðabyggð, segir ákvörðun Jóns Björns hafi komið á óvart.

-------------------

Deila Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er líklega harðasta kjaradeilan sem sést hefur á þessari öld segir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, vinnumarkaðsfræðingur. Hann rekur ekki minni til þess verkbann hafi áður beinst jafn fjölmennum hópi og er undir. Ljóst vinnulöggjöfin nái ekki tilgangi sínum stilla til friðar.

Stutt heimsókn Joes Bidens Bandaríkjaforseta til Úkraínu í dag kom flatt upp á flesta. Heimsóknin er sögð þrungin merkingu þegar nærri ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu og stórsókn þeirra vofir yfir. Ásgeir Tómasson tók saman. Brot úr ávörpum Joes Bidens og Volodymyrs Zelenskys forseta Úkraínu.

Norðmenn eru æfir yfir í því frægt málverk af Leifi Eíríkssyni var tekið niður og sett niður í kjallara í Ríkislistaafninu í Ósló. Gísli Kristjánsson sagði frá.

Frumflutt

20. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,