Spegillinn

Verkföll, deila Pólverja og ESB, afsögn Sturgeon, vargöld í Svíþjóð

Spegillinn 15.02. 2023

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Settur ríkissáttasemjari hefur fundað með samninganefndum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins síðan klukkan níu í morgun. Hann segir setið verði fram á kvöld, svo lengi sem eitthvert gagn er af því. Formaður Samtaka atvinnulífsins segir það óhóflega bjartsýni halda samningar náist í kvöld en formaður Eflingar er bjartsýnni en áður.

Fólk flykktist á bensínstöðvar í aðdraganda verkfallsins, til fylla á bíla sína og jafnvel brúsa og tunnur auki. Viðbúið er verkfallið mikil áhrif á innanlandsflug, jafnvel þótt það vari aðeins nokra daga, fáist ekki undanþágur.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið málaferli gegn stjórnvöldum í Póllandi eftir æðsti dómstóll landsins dró í efa forgangsáhrif Evrópulaga.

---------------

Verkfall um 600 Eflingarfélaga hófst á hádegi í dag. Það er ótímabundið og bætist við verkföll félagsins á hótelum sem hófust 7. febrúar. Þessi lota verkfalla kemur verr við almenning en fyrsta lotan, því eru bæði fleiri komin í verkfall, og ekki síður, áhrifin eru meiri í ljósi þess olíu- og bensíndælur á vesturhluta landsins eru teknar tæmast hver á fætur annarri, og raunar gerðist það mjög fljótlega eftir verkfall hófst um miðjan dag.

Nicola Sturgeon tilkynnti í dag um afsögn sína sem fyrsti ráðherra Skotlands, eftir átta ár í embætti. Hún segist kveðja embættið með stolt í hjarta.

Lögreglan í Stokkhólmi hefur haft afskipti af börnum allt niður í þrettán ára aldur í tengslum við vargöldina sem staðið hefur yfir frá því skömmu fyrir jól. Skotárásir og sprengjutilræði hafa verið daglegt brauð. Ódæðin eru oft framin af börnum og ungmennum meðan höfuðpaurarnir sitja í skjóli ? jafnvel erlendis.

Frumflutt

15. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,