Spegillinn

Kvika og Íslandsbanki í eina sæng og 20 þúsund látin eftir skjálfta

Viðræður um sameiningu Íslandsbanka og Kviku um sameiningu eru hefjast. Samruninn myndi stækka efnahagsreikning Íslandsbanka um 20 prósent.

Um tuttugu þúsund manns hafa fundist látin í Tyrklandi og Sýrlandi vegna jarðskjálftana á mánudag. Mikil eyðilegging blasir við íslenskum björgunarsveitarmönnum sem eru í Tyrklandi. Enn finnst fólk á lífi í rústunum

Síðasta vaxtahækkun Seðlabankans er í boði ríkisstjórnarinnar og kyndir undir verðbólgubálinu, segir miðstjórn ASÍ. Hagfræðingur samtakanna segir það pólitíska ákvörðun láta aðgerðir gegn verðbólgu bitna á alþýðu manna frekar en stöndugum stórfyrirtækjum.

Sviðsstjórar hjá Hafrannsóknarstofnun fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar. Bæta þurfi í til rannsókna og eftirlits með sjókvíaeldi

Eitt fremsta og afkastamesta popptónskáld heims, Burt Bacharach er látinn, 94 ára aldri.

------

Þúsundir hafa látist vegna jarðskjálfta í Tyrklandi á mánudaginn. Enn fleiri töpuðu öllu sínu - björgunarstarf stendur yfir og er hvergi nærri lokið. Fjöldi hjálparsamtaka sendi liðsauka til landsins í þeirri von bjarga fólki úr rústum húsa sem hrundu. Meðal þeirra er níu manna hópur frá Íslandi sem vinnur samhæfingu aðgerða. Þau lögðu af stað fyrr í vikunni og eru komin til Hatay Expo.

Sólveig Þorvaldsdóttir fer fyrir hópnum. Við skulum heyra lýsingu hennar á störfum hópsins.

Eftir síðustu hækkun eru stýrivextir Seðlabankans 6,5 prósent og hafa ekki verið hærri síðan 2010. Stýrivextir voru í lágmarki í apríl 2021, 0,75 prósent, - hafa því hækkað um 5,75 prósentustig og þannig nær sexfaldast á innan við tveimur árum. Þessi síðasta hækkun, sem nam 0,5 prósentustigum, hefur verið harðlega gagnrýnd, jafnt af stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins, og þótt yfirlýstur tilgangur stýrivaxtahækkana hamla gegn verðbólgu er hækkunin sögð virka sem olía á verðbólgubálið sem brennur þó glatt fyrir, en verðbólga mælist 9,9 prósent. Og matarkarfan hækkar og hækkar. Auður Alfa Ólafsdóttir er sérfræðingur ASÍ í neytendamálum.

Ríkisendurskoðun fer hörðum orðum um stjórnsýslu, eftirlit og umsjón með sjókvíaeldi hér á landi í skýrslu sem gefin var út í vikunni. Gagnrýni hefur komið úr ýmsum áttum, bæði frá veiðifélögum, siðfræðingum, náttúruverndarsamtökum og fleirum og er hún yfirleitt á þá lund stjórnkerfið veikburða og jafnvel pólitísk spilling hafi sett mark sitt á greinina.

Landvernd og Landssamband veiðifélaga hafa kallað eftir sjókvíaeldi verði hætt án tafar.

Bjarni Rúnarsson ræddi við Guðna Guðbergsson sviðstjóra ferskvatns og eldissviðs Hafrann

Frumflutt

9. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,