Mannlegi þátturinn

Leikárið í Þjóðleikhúsinu, vinkill um forystufé og Signý lesandinn

Við héldum áfram yfirferð okkar um leik- og sviðslistahúsin, hvað verður á fjölum þeirra í vetur. Í dag var það Þjóðleikhúsið, Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóri, kom og sagði okkur allt um það hvernig leikveturinn verður þar á bæ.

Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. þessu sinni fjallaði vinkillinn um forystufé. Það mun vera sérstakur fjárstofn, með sérstaka eiginleika sem útlistaðir verða. Auk þess verður gluggað í bók sem skrifuð var um miðja síðustu öld með það fyrir augum varðveita sögur af forystufé, auk þess sem eins slík fær fljóta með.

Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Signý Pálsdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri menningarmála Reykjavíkurborgar, Signý sagði okkur frá því hvað hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Signý talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

The Covenant of Water e. Abraham Verghese

Fátækt fólk, Baráttan um brauðið og Fyrir sunnan, allar e. Tryggva Emilsson

Þetta rauða það er ástin, e. Rögnu Sigurðardóttur

Biblían

Salka Valka e. Halldór Laxness

Laxdæla og Íslendingasögurnar

Tónlist í þættinum:

Út í kvöld / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon)

One of these days / Solveig Slettahjell (Sjur Miljeteig)

The Girl from Ipanema / Frank Sinatra (Antonio Carlos Jobim, Vinicius Demoraes, Norman Gimbel)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

16. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Þættir

,