Mannlegi þátturinn

Ingibjörg Stefánsdóttir föstudagsgestur og matarspjall að norðan

Árið 1993 vann Jon Kjell Seljeseth Söngvakeppnina með laginu Þá veistu Svarið sem Ingibjörg Stefánsdóttir söng. Ingibjörg var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag, en þegar hún fór til Írlands til taka þátt í Eurovision fyrir hönd Íslands var hún tvítug og hafði getið sér orðspors sem söngkona hljómsveitarinnar Pís of keik og fyrir leika eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Veggfóður. Ingibjörg hefur komið víða við í listinni, sungið og leikið og síðustu ár hefur hún starfað sem jógakennari og rekið sína eigin jógastöð Yoga Shala. Ingibjörg fór með okkur aftur í tímann og talaði um árin í Hallormstaðaskóla, móðurmissinn, námsárin í New York og margt fleira.

Frú Sigurlaug Margrét var enn stödd norður á Akureyri í matarspjalli dagsins. Þar, eins og víðast á landinu, hefur verið ansi kalt og því var spjallið í dag helgað mat sem yljar okkur innan. Til dæmis súpur og plokkfiskur og svo við, einu sinni sem oftar, ábendingu frá hlustendum um muninn á soðibrauði og soðbrauði.

Tónlist í þættinum:

Þá veistu svarið / Ingibjörg Stefánsdóttir (Jon Kjell Seljeseth, texti Friðrik Sturluson)

Náum aðeins andanum / Daði Freyr og Ásdís María (Daði Freyr)

Everything Now / Arcade Fire (Edwin Butler, Jeremy Gara, Regine Chassagne, Richard Reed Parry, Tim Kingsbury, William Butler)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

10. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

(Aftur í kvöld)

Þættir

,