• 00:05:29Gréta Matthíasd. - að velja háskólanám
  • 00:21:11Gunnar Hersveinn - umræðuhefðin
  • 00:37:07Einar Sveinbjörnsson - veðurspjallið

Mannlegi þátturinn

Að velja háskólanám, heiftúðug umræðuhefð og veðurspjallið

5. júní rennur út umsóknarfrestur í flesta háskóla á landinu. Það getur verið snúið finna út hvaða nám hentar manni best og við fengum Grétu Matthíasdóttur, forstöðukona nemendaráðgjafar Háskólans í Reykjavík, í þáttinn til fara vítt og breitt yfir sviðið og hvernig hægt er hjálpa nemendum finna sína leið.

Gunnar Hersveinn, heimspekingur og rithöfundur, kom svo í þáttinn, en hann skrifaði pistil sem við rákumst á um umræðuhefðina sem skapast hefur hér á landi, og reyndar víða í öðrum löndum, þar sem stíllinn einkennist til dæmis af því láta andstæðinginn, eða þann sem þú ert ósammála, það óþvegið. fólk með andstæðar skoðanir ekki tala saman, heldur hafi meiri áhuga á skamma hvert annað, hæðast og grafa undan. Við ræddum þessa umræðuhefð við Gunnar í þættinum.

lokum kom Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur til okkar í veðurspjallið. Í dag sagði hann okkur frá miklum hitum sem hafa geysað undanfarnar vikur í Mexíkó. Mörg hitamet hafa fallið og sérstaklega heitar nætur. Dýr hafa drepist af hitaslagi og þurrkar fylgja og er óttast vatn geti endanlega gengið til þurrðar í Mexíkóborg á næstu vikum. Svo rifjðuum við upp vorið í fyrra, en um þetta leyti gerði hret svo stórsá á trjágróðri. er sem betur fer annað uppi á teningnum. Milt þessa daga, en spáð er kólnandi veðri, t.d. á kjördag. lokum sagði Einar okkur frá því hversu fáar mannaðar veðurstöðvar eftir í dag.

Tónlist í þættinum í dag:

Líf / Hildur Vala (Jón Ólafsson, texti Stefán Hilmarsson)

Almost Over You / Önnu Jónu Son (Haraldur Þorleifsson)

Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)

Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

28. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Helga Arnardóttir

Þættir

,