Mannlegi þátturinn

Hildur Björk í Glerárkirkju, systkinaofbeldi og vísindaspjall með Eddu

Við heimsóttum Glerárkirkju í dag og ræddum við séra Hildi Björk Hörpudóttur og hún sagði okkur frá starfinu innan kirkjunnar en hún lítur á kirkjuna sem samfélagstorg og vill hún opin fyrir alla. Úlfatíminn er tími fyrir fjölskyldur sem geta komið einu sinni í mánuði og leikið sér saman seinni partinn og borðað saman og þetta hefur mælst vel fyrir. Foreldrar eru líka með í fermingarfræðslunni en það er nýlunda og við heyrðum meira um þetta í spjallinu.

Við heyrðum um meistararitgerð þar sem fjallað er um systkinaofbeldi. Þórdís Bjarnleifsdóttir meistaranemi í félagsráðgjöf við félagsvísindasvið Háskóla Íslands segir systkinaofbeldi ekki skilgreint og lítið ef nokkuð rannsakað á Íslandi en yfirskrift ritgerðar hennar er „Þögnin í kringum systkinaofbeldi: Viðhorf fagfólks til ósýnilegs ofbeldis innan fjölskyldunnar.“ Markmið rannsóknarinnar var kanna skilgreiningar, viðhorf og viðbrögð fagfólks sem vinnur með fjölskyldum og börnum, gagnvart systkinaofbeldi. Þórdís sagði okkur meira frá þessu í dag.

Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið. Hún hefur frætt okkur á miðvikudögum um merkilega hluti sem eru gerast í heimi vísindanna og í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem sýnir hvernig bakterían Morganella morganii getur ýtt undir, eða jafnvel valdið þunglyndi.

Tónlist í þættinum í dag:

Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst)

Dýrð í dauðaþögn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Júlíus Aðalsteinn Róbertsson)

Harvest Moon / Neil Young (Neil Young)

Háa c / Mosess Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

29. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,