Mannlegi þátturinn

Leikárið í Borgarleikhúsinu, vinkill og Sunneva lesandi vikunnar

Við héldum áfram yfirferð okkar um hvað verður á fjölunum í leik- og sviðslistahúsum landsins. Í dag var komið Borgarleikhúsinu og til okkar kom Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri. Hún sagði okkur allt um það sem þar mun fara fram þennan leikveturinn.

Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn fjallaði vinkillinn um gildi þess hugsa frekar fallega en ekki til samferðafólksins og hvernig það getur mögulega haft áhrif til hins betra á samskipti manna í millum, jafnvel heilu samfélögin. Þá var fjallað um áhrif kurteisi í samskiptum og gildi þess segja það sem maður meinar og meina það sem maður segir.

Svo var í lokin lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Sunneva Thomsen, en hún starfar við kvikmyndagerð auk þess vera í listnámi. Hún ætlar segja okkur frá því hvað hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sunneva talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Dune e. Frank Herbert

In the Dream House e. Carmen Maria Machado

Boulder e. Eva Baltasar

Ein til frásagnar e. Immaculee Ilibagiza

Jane Eyre e. Charlotte Bronte

Tónlist í þættinum:

Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)

Óskaland / Moses Hightower (Steingrímur Karl Teague, Andri Ólafsson og magnús Tryggvason Eliassen)

Vængir / Hörður Torfason (Hörður Torfason)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

9. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Helga Arnardóttir

Þættir

,