Mannlegi þátturinn

Barnakvikmyndahátíð, vinkill um fráveitu og Stefán Halldórsson lesandinn

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í næstu viku. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem árlegur menningarviðburður barna og unglinga. Þarna verða sýndar alþjóðlegar verðlaunamyndir fyrir alla fjölskylduna og opnunarmynd hátíðarinnar í ár er ævintýra og fantasíumyndin Flow, sem vann dómnefndar og áhorfendaverðlaun á Annecy teiknimynda hátíðinni í ár. Myndin er án tals og hefur verið kölluð ein byltingarkenndasta teiknimyndin síðan Bambi kom út. Lísa Björg Attensperger, stjórnandi hátíðarinnar og Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradís komu í þáttinn.

Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn fjallaði þessu sinni um fráveitumannvirki, sem eru pistlahöfundi hugleikin í þíðunni, hann velti fyrir sér ýmsum tæknihugtökum og bregðum á leik með samanburði á slíkum fyrirbærum milli þjóða sem hafa marga eða fáa íbúa á ferkílómeter. lokum kom svolítil tilvitnun í Innansveitarkróníku Halldórs Laxness.

Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Stefán Halldórsson, félagsfræðingur, rekstrarhagfræðingur og ættfræðigrúskari. Við fengum vita hvaða bækur hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Stefán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi, e.

Þú ringlaði karlmaður tilraun til kerfisuppfærslu e.

Bernskubók e. Sigurð Pálsson

Það liðna er ekki draumur e.Theodor Kallifatides

Staðurinn e. Annie Ernaux

Veröld sem var e. Stefan Zweig

Söknuður e. Matthías Johannessen

Þríleikurinn Gangvirkið (1955), Seiður og hélog (1977), Drekar og smáfuglar (1983) e. Ólaf Jóhann Sigurðsson

Tónlist í þættinum í dag:

Stundum / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen og Steingrímur Karl Teague)

Grýla / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson, texti Pétur Gunnarsson)

Oh Happy Day / Edwin Hawkins Singers (Edwin Hawkins)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

21. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

(Aftur í kvöld)

Þættir

,