Reykjavík Bear hátíðin fer fram dagana 3.–6. september og sameinar bangsa, vini þeirra og gesti víðsvegar að úr heiminum í fjögurra daga hátíð. Bangsasamfélagið á rætur í menningu samkynhneigðra karla og varð til sem rými fyrir fólk sem fann sig ekki í ríkjandi útlitskröfum. Orðið bangsi hefur gjarnan verið tengt við stórvaxna, skeggjaða eða loðna karlmenn, en samfélagið er mun fjölbreyttara en sú staðalmynd gefur til kynna. Meðal hápunkta er val á Mr. Reykjavík Bear í Austurbæjarbíói laugardaginn. Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins, og Jóhann Örn B. Benediktsson, sem vann titilinn Mr. Reykjavík Bear í fyrra, komu í þáttinn í dag.
Svo brugðum við okkur til Síerra Leóne, en Barnaheill hefur staðið að byggingu skóla í þorpi þar. Ákvörðunin um að gera það var tekin eftir að blasti við að börnin á svæðinu gátu ekki nýtt sér aðstoð Barnaheilla því að það vantaði grunnstoðina, skólann. Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sagði okkur betur frá þessu, verkefnum samtakanna, haustsöfnuninni, Vigdísarstokknum og styrktartónleikum í Salnum í þætti dagsins.
Edda Olgudóttir tók upp þráðinn frá miðvikudögum síðasta vetrar og kom í vísindaspjallið í dag. Nú fjallaði hún um rannsóknir sem sýna áhrif sætuefna á þarmaflóruna og fleira, jafnvel í nokkrar kynslóðir.
Tónlist í þættinum í dag:
Skítaveður / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason)
Gangi þér allt að sólu / Armundur Ernst Backman Björnsson (Armundur Ernst Backman Björnsson)
Seabird / Alessi Brothers (Billy Alessi, Bobby Alessi & Mike Melvoin)
Fiskisúpa Sigríðar í Fjörhúsinu / Hilmar Oddsson (Hilmar Oddsson, texti Karl Roth)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR