• 00:05:15Kvennakórinn Katla í Hörpu
  • 00:27:12Póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni
  • 00:37:40Vera Sif Rúnarsd. - tengsl áfalla við heilsufar

Mannlegi þátturinn

Kvennakórinn Katla, póstkort frá Magnúsi og Vera Sif Rúnarsdóttir

Við kíktum niður í Hörpu á æfingu hjá kvennakórnum Kötlu en þær eru með árlega vortónleika næstu helgi og kórinn er fjölmennur, en um 80 konur eru skráðar í hann og sérstök áhersla er lögð á búninga, leikmuni og gleði. Þær vilja líka láta gott af sér leiða í okkar samfélagi. Samstýrur kórsins, Hildigunnur Rúnarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, sögðu okkur frá starfinu og einnig var rætt við konur í búninganefnd kórsins, þær Ragnheiði Bjarnadóttur og Elínu Hörpu Valgeirsdóttur og svo lokum stjórnarkonurnar Guðrúnu Helgadóttur, Söndru Harðardóttur og Sólveigu Ingólfsdóttur .

Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í Þýskalandi standa núna yfir réttarhöld yfir næstum þrjátíu manns sem eru ákærðir fyrir skipuleggja vopnaða byltingu gegn stjórn landsins. Aðalsprautan í hópnum er sjötíu og tveggja ára fasteignasali sem kallar sig prins Hinrik þrettánda. Frá þessu var sagt í póstkorti dagsins, en Magnús er nýkominn frá Þýskalandi þar sem þetta er ein aðalfréttin í fjölmiðlum. Hann sagði líka frá heimsókn sinni í pyntingartækjasafn í borginni Rothenburg, en safnið geymir ótrúleg tæki og tól frá miðöldum sem voru notuð til knýja fram játningar hjá sakamönnum aðallega konum sem voru kærðar fyrir galdra.

Sjónaukinn, árleg ráðstefna heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri fór fram í síðustu viku. Þar voru flutt fjölmörg fjölbreyttu erindi en stór hluti af erindum á ráðstefnunni eru kynningar nema sem eru ljúka meistaranámi í heilbrigðisvísindum á rannsóknarverkefnum sínum. Vera Sif Rúnarsdóttir kynnti niðurstöður rannsóknar á tengslum áfalla í æsku við almennt heilsufar á fullorðinsárum. Vera sagði okkur meira frá því í þættinum í dag.

Tónlist í þættinum í dag:

Þín hvíta mynd / Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur Kristinsson (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson)

Everybody’s Talkin’ / Harry Nilson (Fred Neil)

Adios Muchachos / Stanley Black (Sanders & Vedani)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

22. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Helga Arnardóttir

Þættir

,