Mannlegi þátturinn

Málþing um læsi og námsorðaforða, Minecraft tónlist í Hjallakirkju og Anna María á Heilsuvaktinni

Á morgun verður haldið málþing um læsi og námsorðaforða, frumkvæði Íslenskrar málnefndar, þar sem farið verður yfir stöðu mála í íslenskukennslu. Þar verða flutt erindi þar sem meðal annars verður skoðað hrakandi læsi nemenda, staða barna með íslensku sem annað mál og hvernig gagnlegt styðja kennara í þessum flóknu verkefnum og hvers konar verkefni virka. Doktor Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið og dr. Elín Þöll Þórðardóttir, sem starfar við McGill háskóla í Quebec í Kanada og kennir talmeinafræði hjá HÍ, komu í þáttinn og sögðu betur frá stöðunni.

Á morgun verða einnig tónleikar í Hjallakirkju í Kópavogi þar sem tónlistin úr tölvuleiknum Minecraft verður flutt á orgel og píanó. Kristján Hrannar Pálsson organisti kirkjunnar leiðir tónleikana ásamt píanónemendum úr Tónlistarskóla Kópavogs. Hann segir þetta sennilega í fyrsta skipti sem þessi tónlist flutt í lifandi flutningi á Íslandi. Kristján segir börn geti uppgötvað klassíska tónlist og klassísk hljóðfæri í gegnum tölvuleiki og píanónemendur um víða veröld biðji oft um spila þessa tónlist. Við hittum Kristján Hrannar við orgelið í Hjallakirkju.

Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Það er líf eftir geðrof, segir Anna María Jónsdóttir sem greindist fyrir rúmu ári með geðhvarfasýki eða bipolar eins og sjúkdómurinn er oftast kallaður. Anna sem er rúmlega fertug segir margt í sínum lífstíl hafa hjálpað sér til lifa góðu lífi með geðhvörf. Hún nefnir fyrst og fremst hugleiðslu sem hún stundar daglega og jafnvel oftar, auk þess sem hún hreyfir sig mikið, passar sykurneyslu og borðar næringarríkan mat. Hún segist einnig vera heilög með svefninn og setur sér markmið um alltaf 8 tíma nætursvefni. Helga ræddi við Önnu Maríu í kaldri vorgolunni á dögunum.

Tónlist í þættinum í dag:

Í fjarlægð - Björgvin Halldórsson (Karl O. Runólfsson, texti Cæsar, eða Valdimar Hólm Hallstað)

Vor í Vaglaskógi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk)

Minecraft / C418 (Danieal Rosenfeld)

Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

5. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,