Vaxtamál bankanna og Neytendasamtökin, Veðurspjall Einar Sveinbjörnsson
MANNLEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAGUR 12.JÚNÍ
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR
Íslenskum bönkum er ekki heimilt að breyta vöxtum að vild og skilmálar í lánasamningum þeirra teljast ekki uppfylla skilyrði um gegnsæi og skýrleika. Þetta kemur fram í nýlegu áliti EFTA dómstólsins vegna mála sem Neytendasamtökin höfðuðu á hendur þremur bönkum í sex málum, vegna matskenndra og ógegnsærra vaxtaákvarðana. En hvað þýðir þetta fyrir neytendur? Sjálfa lántakendur og hvað geta þeir gert til að verða hreyfiafl í þessu risavaxna máli ef dómstólar dæma Neytendasamtökunum í hag eftir álit EFTA dómstólsins? Formaður Neytendasamtakanna og lögmaður þeirra ræddu þetta mál í Mannlega þættinum í dag.
Við fengum svo Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing til okkar í gegnum símalínu hér á eftir, en hann er staddur í Kaupmannahöfn. Hann ætlar að segja okkur frá áhugaverðri vinnustofu sem hann sótti með Vegagerðinni, líkani með aðferðum gerfigreindar til að spá fyrir um yfirborðshita vega að vetrarlagi. Gert á grunni hitamyndavéla í bílum Vegagerrðarinnar sem taka slíkar hitamyndir í sífellu á ferðum sínum. Og svo ræddum við líka um veðurútlitið næstu daga sem telst vera gott. 17. júní og langtímaspár fyrir næstu viku fram yfir sumarsólstöður sem nálgast óðfluga.