• 00:05:25Gunnar Anton - leitaði upprunans á Indlandi
  • 00:32:50Jónatan Garðarsson um Hauk Morthens

Mannlegi þátturinn

Anton leitaði upprunans á Indlandi og Haukur Morthens 100 ára

Við heyrðum sögu Antons Gunnars Ólafssonar í dag. Hann var ættleiddur sjö mánaða gamall, frá Indlandi, af hjónum frá Akureyri. Hann hefur hugsað um uppruna sinn frá barnsaldri, óhjákvæmilega áttaði hann sig á því hann var ólíkur öðrum börnum í kringum sig. Hann fór þó ekki hugsa af alvöru um það leita uppruna sínum fyrr en eftir faðir hans lést árið 2016. Hann fékk í sínar hendur skjölin sem fylgdu honum í ættleiðingunni, og eftir hafa leitað ráða, meðal annars hjá vinkonu sinni sem hafið staðið í sömu sporum, fór hann loks til Indlands í fyrsta sinn. Hann er nýkominn heim úr þeirri ferð og við fengum heyra í þættinum hjá honum hvernig reynsla var.

Svo kom Jónatan Garðarsson aftur til okkar, eins og hann hefur gert undanfarnar vikur, til fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag sagði Jónatan okkur sögu Hauks Morthens, en á föstudaginn hefði Haukur orðið 100 ára. Hann var auðvitað einn farsælasti og vinsælasti dægurlagasöngvari Íslands. Við komum ekki tómum kofanum hjá Jónatani í dag frekar en fyrri daginn.

Tónlist í þættinum í dag:

Ennþá man ég hvar / GÓSS (Mogens Dam og Kaj Andersen texti Bjarni Guðmundsson)

Ó, borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens, texti Vilhjálmur frá Skáholti)

Við freistingum gæt þín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason, texti Matthías Jochumson)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

15. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Helga Arnardóttir

Þættir

,