Mannlegi þátturinn

Fimmta hvert barn, gullmolinn af safninu frá 1947 og Guðrún Helga lesandi vikunnar

Við fræddumst um verkefnið Fimmta hvert barn sem UNICEF hefur verið vinna með yfir 800 börnum á Íslandi. Það er myndlistarsýning í Hörpu sem varpar ljósi á þá hrikalegu staðreynd fimmta hvert barn í heiminum býr við afleiðingar stríðs og átaka. Sýningin stendur til 3.maí og þær Sigyn Blöndal kynningarstjóri og Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF komu til okkar í dag og sögðu okkur betur frá.

Helga Lára Þosteinsdóttir safnstjóri RÚV kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Rúgbrauðsgerðin er almennt heiti á húsinu Borgartúni 6, en það var reist árið 1947. Í innslagi dagsins, sem tekið var upp fyrir þáttinn Heyrt og séð þann 24.ágúst árið 1947, segir Jónas Árnason aðeins frá þessu nýja stórhýsi sem hýsti mjög metnaðarfulla framleiðslu á rúgbrauði, hrökkbrauði og sultu. Seinni hluti umfjöllunarinnar snýr Nýborg, aðalútsölustað Áfengisverslunar ríkisins við Skúlagötu. Á þessum tíma var áfengi afgreitt yfir borðið. Helga Lára sagði okkur nánar frá og við heyrðum þessi hljóðbrot frá liðnum tíma.

Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Guðrún Helga Halldórsdóttir búðareigandi og stundakennari við japönskudeild HÍ. Hún er stödd í Kyoto í Japan og vegna mikils tímamunar hringdum við í hana snemma í morgun og tókum spjallið upp. Við forvitnuðumst aðeins um hana og af hverju hún er stödd í Japan og svo sagði hún okkur auðvitað hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Dagar mínir í Morisaki bókabúðinni e. Satoshi Yagisawa í þýðingu Ugga Jónssonar

Kjörbúðarkonan e. Sayaka Murata í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur

Svo talaði hún um áhrif Haruki Murakami á sitt líf.

Tónlist í þættinum í dag:

Síðasti móhítóinn / Sigurður Guðmundsson, Memfismafían og Tómas R. Einarsson (Bragi Valdimar Skúlason)

Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson)

Manstu gamla daga / Alfreð Clausen (Alfreð Clausen, texti Kristín Engilbertsdóttir Clausen)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

27. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,