• 00:07:01Inga og Sonja - Lausa skrúfan
  • 00:19:01Karlar í skúrum í Hafnarfirði
  • 00:34:55Mannleg samskipti - 3 leiðir sem meðvirkir nota

Mannlegi þátturinn

Lausa skrúfan, Karlar í skúrum og mannlegu samskiptin með Valdimari

Lausa Skrúfan er vitundarvakning á vegum Grófarinnar Geðræktar á Akureyri. Markmið hennar er auka meðvitund fólks um gæta vel andlegri heilsu sinni, efla forvarnir í geðheilbriðismálum og minnka fordóma gagnvart andlegum veikindum. Enn fremur, hvetja fólk til þess leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og veita upplýsingar um hvar stuðning er finna í samfélaginu okkar. Inga Bryndís Árnadóttir og Sonja Rún Sigríðardóttir frá Grófinni sögðu okkur betur frá í þættinum.

Við brugðum okkur svo í Helluhraunið í Hafnarfirðinum og kynntumst áhugaverðum félagsskap sem kallar sig Karlar í skúrum. Þetta verkefni er starfrækt á nokkrum stöðum á landinu og er opið fyrir alla karlmenn og gefur þeim stað og stund itl hittast, spjalla og vinna ýmsum sameiginlegum verkefnum sem þeir sjálfir ákveða. Þar er unnið í ýmis konar handverki, smíðum, útskurði, járnsmíði, leðurvinnslu og mörgu fleiru. Við fengum skoða aðstöðuna og ræddum í kaffistofunni þar við Þórarinn Klemensson, Sigurjón Elíasson og Hallgrím Guðmundsson.

Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í framhaldi af spjallinu síðasta fimmtudag þá tókum við upp þráðinn og Valdimar sagði okkur frá þremur leiðum sem meðvirkir einstaklingar nota oft til bregðast við erfiðleikum í lífinu.

Tónlist í þættinum í dag

Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti)

Vor við flóann / GÓSS (Leon René, texti Jón Sigurðsson)

Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason)

Í stóru húsi / Hildur Vala (Halldór Gylfason)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

26. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,