Mannlegi þátturinn

Verkjasjúklingar, iðjuþjálfar og háþrýstimeðferð

Við fræddumst í dag um verkjasjúklinga, sem sagt þegar fólk glímir við langvinnandi verki og stoðkerfisvanda, en um 20% þjóðarinnar býr við hamlandi verki einhverju leiti. Hrefna Óskarsdóttir er sviðstjóri iðjuþjálfunar á verkjasviði Reykjalundar, auk þess kenna við Háskólann á Akureyri, hún kom í þáttinn og sagði sína eigin reynslusögu. En hún hefur glímt sjálf við verki og þar sem hún er einmitt sjálf iðjuþjálfi á verkjasviði þá mætti ætla hún hefði nægilegar upplýsingar og skilning og verkfæri til takast á við verkina, en staðreyndin var því duglegri sem hún var í því gera það sem var „rétt“ samkvæmt verkjafræðunum, því verkjaðri varð hún. Þá voru góð ráð dýr. Hrefna sagði okkur sína sögu í þættinum og vonast eftir umræðan komi meira upp á yfirborðið í framhaldi.

Heilbrigðismál voru í brennidepli hjá okkur á þessum þriðjudegi. Iðjuþjálfar er mikilvægt heilbrigðisstarfsfólk og næsti sunnudagur er dagur iðjuþjálfunar. Í Ljósinu starfa 13 iðjuþjálfar sem í þverfaglegum teymum sérsníða endurhæfingu og stuðning við yfir 600 krabbameinsgreinda í mánuði og öll þessi vika er tileinkuð iðjuþjálfun í Ljósinu. Guðrún Friðriksdóttir og Kolbrún Halla Guðjónsdóttir frá Ljósinu komu í þáttinn, en þær eru nýkomnar af fyrstu sameinaða Evrópuráðstefna iðjuþjálfara.

Svokölluð háþrýstimeðferð sem fer fram á Landspítalanum hefur hjálpað um 60 langtíma covid sjúklingum bata eftir erfið eftirköst sjúkdómsins á borð við heilaþoku, síþreytu og viðvarandi flensu einkenni. Sumir þeirra hafa jafnvel ekki haft orku svo mánuðum skiptir til sinna börnum og einföldum húsverkum án þess örmagnast og hafa þurft vera frá vinnu vegna veikinda og orkuleysis. Erlendar rannsóknir sýna háþrýstimeðferð, sem gengur út á súrefnisinntöku í háþrýstiklefa í 90 mín á dag, hjálpar frumum endurnýja ónýta og bólgna vefi, t.d. af völdum covid, og gerir það verkum heilaþoka minnkar og orka fólks eykst. Dæmi eru um fólk sem var hætt geta synt stuttar vegalengdir, hreyft sig eða bara leyst Sudoku er farið geta sinnt því aftur eftir meðferð. Enn aðrir eru farnir vinna aftur, stunda nám á og geta lifað eðlilegu lífi. Helga Arnardóttir hitti tvo starfsmenn háþrýstiklefans á Landspitalanum, Nönnu Ólafsdóttur hjúkrunarfræðing, sem hefur starfað þar lengi, og ítalska háþrýsti-og köfunarlækninn Leonardo Sturlu Giampaoli.

Tónlist í þættinum í dag:

Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, texti Jón Sigurðsson)

Nantes / Beirut (Zach Conlon)

Augun þín blá / Óðinn Valdimarsson og Hljómsveit Finns Eydal (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

22. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Þættir

,