• 00:04:59Leifur Geir - gömlu eyjalögin
  • 00:20:06Helga Arnard. - heilsuvaktin um trefjar
  • 00:34:55Kári Sævarsson - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Gömlu eyjalögin, trefjar á Heilsuvaktinni og Kári lesandi vikunnar

Leifur Geir Hafsteinsson, forsprakki alþýðutónlistarhópsins Vinir og vandamenn og dóttursonur Oddgeirs Kristjánssonar, kíkti í heimsókn til okkar í dag en hópurinn vinnur gerð hljómplötu þar sem finna áður óútgefin eða sjaldheyrð gömul Eyjalög. Leifur sagði okkur frá hljómplötunni og lögunum og við heyrðum tvö laganna, þar á meðal Setjumst sumbli en það er fyrsta Þjóðhátíðarlagið, frá árinu 1933 og hefur aldrei verið gefið út áður og var því frumflutt í útvarpi í Mannlega þættinum í dag.

Í Heilsuvakt dagsins kom Helga Arnardóttir til okkar í beina útsendingu og ræddi um prótein æðið sem hefur riðið yfir á samfélagsmiðlum og trefjaæðið sem er taka við. Rannsóknir sýna nefnilega fæstir lágmarksskammti af trefjainntöku á dag en trefjar hafa veruleg góð áhrif á meltinguna og næra bakteríur í þarmaflórunni en ekki bara það því dagleg og góð trefjainntaka getur spornað gegn sykursýki 2, ristilkrabba, hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og alzheimer svo eitthvað nefnt. Helga ræddi þetta við okkur á Heilsuvaktinni og fór yfir helstu fæðuflokka sem innihalda góðar trefjar.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Kári Sævarsson einn af eigendum vörumerkjastofunnar Tvist. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Kári talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Smásögur eftir Hauk Ingvarsson (sem eiga koma út í heildarsafni og ekki enn kominn titill)

Tímabundin e. Kristján Hrafn Guðmundsson

Alistair McClean og Hammond Innes

Fávitinn e. Dostojevski

Tónlist í þættinum í dag:

Í bíl / Vinir og vandamenn (Oddgeir Kristjánsson, ljóð Örn Arnarson)

Setjumst sumbli / Vinir og vandamenn (Oddgeir Kristjánsson,texti Árni úr eyjum)

And I love her / The Beatles (Lennon & McCartney)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

7. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,