Réttarhöld vegna ákæru ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta gegn Manchester City hófust í dag. City er ákært fyrir að hafa brotið 115 sinnum á fjármálaregluverki deildarinnar á árunum 2009 til 2018. Ákærurnar komu í kjölfar rannsóknar sem tók fjögur ár en forsvarsmenn félagsins neita að hafa brotið reglur. Við ræddum málefni City við Jóhann Má Helgason sérfræðing í fjármálum knattspyrnufélaga.
Aðsókn að helstu náttúruperlum landsins hefur aukist milli ára þrátt fyrir að margir hafi lýst vonbrigðum með ferðamannasumarið í ár. Ferðamálastofa tók saman tölur fyrir Morgunblaðið en þær eru unnar úr teljurum víða um land. Við rýndum aðeins í helstu niðurstöður með Halldóri Arinbjarnarsyni upplýsingastjóra Ferðamálastofu.
Meðvirkni hefur óteljandi birtingamyndir og nú rákum við í Síðdegisútvarpinu augun í það að komið er fram á sjónvarsviðið meðvirkni hlaðvarp. Umfjöllunarefni hlaðvarpsins eru margskonar og byggja bæði á faglegum grunni og raunverulegum aðstæðum úr hversdagsleikanum og maðurinn á bakvið hlaðvarpið Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu ráðgjafaþjónustu kom til okkar.
Magnús Jóhann Ragnarsson er píanóleikari tónskáld og útsetjari og hefur þrátt fyrir ungan aldur skipað sér veglegan sess í íslensku tónlistarlífi. Nýjasta verkefnið hans er ný plata sem er við það að líta dagsins ljós og auk þess samdi Magnús tónlistina fyrir bíómyndina Ljósvíkingar. Magnús blæs til tónlistarhátíðar sem heitir State of the Art og verður á dagskrá í oktober svo hann situr ekki auðum höndum. Við fengumMagnús til okkar.
Við ætlum líka að heyra af nýútkominni bók eftir Rúnar Helga Vignisson prófessor í ritlist sem heitir - Þú ringlaði karlmaður
Aðalpersónan í bókinni eða sannsögunni er höfundurinn sjálfur á ýmsum þroskastigum. Í bókaumfjöllun kemur fram að í Í kjölfar #metoo og eigin tilvistarglímu ákvað höfundur að takast á við kynjaumræðu samtímans. Úr varð þessi bók sem við heyrum meira um í þættinum.
Efnt hefur hefur verið til undirskriftalista þar sem þess er krafist að Ísafjarðarbær og ríkið taki það alvarlega hversu mikil hætta fylgi því að keyra í Vestfjarðagöngum. Þetta kemur í kjölfar rútubruna á föstudag og Ólöf Birna Jensen, fulltrúi hverfisráðs Súgandafjarðar, er ábyrgðarmaður listans og við spjölluðum við hana.