Síðdegisútvarp Rásar 2 heilsar miðvikudaginn 20. desember. Guðrún Dís Emilsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson sitja saman í hljóðveri í dag.
Í gærmorgun hófst aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Eddu Björk Arnardóttur fyrir Héraðsdómi í Skien í Austur-Noregi en þar sætir Edda ákæru fyrir að nema þrjá syni sína og barnsföður síns á brott. Blaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson hefur fylgst með réttarhöldum og við ætlum að slá á þráðinn til hans.
Við ætlum að taka stöðuna á deilirafskútum og spyrja hvort óhætt sé að nota slík tæki yfir háveturinn. Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Hopp verður á línunni hjá okkur
Matreiðslumeistarinn Gunnar Karl Gíslason og sælkerinn Sverrir Þór Sverrisson buðu landsmönnum til aðventuveislu í sjónvarpi landsmanna á dögunum þar sem þeir heimsóttu fólk í Mývatnssveit og víðar. Þá var meðal annars hangikjöt og laufabrauð á boðstólum en núna á milli hátíða fáum við að sjá afrakstur jóla og áramótaveisluhalda þeirra félaga þar sem þeir smakka á skötu og gæða sér á eggjapúnsi. Við heyrum í Veislubræðrunum Gunnari og Sverri hér á eftir.
Dúettinn Saxi og Sachsi er eineggja saxófóndúett sem leikur lifandi lyftutónlist og hafa þeir félagar nú á aðventunni gert víðreist um miðborg Reykjavíkur og spilað silkimjúkar saxófónútgáfur af nýjum og gömlum jólalögum, sum þeirra frumsamin og önnur sem við vissum ekki einu sinni að væru jólalög. Við fáum þá Saxa og Sachsa í heimsókn.
Við fáum til okkar góðan gest á eftir en Kristinn Guðmundsson myndlistamaður, kokkur og samfélagsmiðlastjarna sem búsettur er í Belgíu er staddur hér á landi. Hann ætlar að koma til okkar og ræða við okkur um aðventuna, jólahefðir og matarmenningu Belga.
Nýjasta spá Veðurstofu Íslands fyrir jólin gefur til kynna að hvít jól verði um nánast allt landið. Mikill kuldi verður í flestum landshlutum. Óli Þór Árnason er veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands og við byrjum á því að heyra frá honum.