Það er brjálað að gera í desember, allir á kafi í jólaundirbúningi og síðan þegar jólin koma þá viljum við öll hafa það sem huggulegast og slaka á. En hvað er gott að hafa í huga áður en þessir rólegu dagar skella á, þurfum við að passa upp á börnin okkar þ.e að setja þeim einhver mörk eða eigum við að leyfa þeim að vafra um internetið að vild, spila eins marga tölvuleiki og þau vilja og vera endalaust lengi á samfélagsmiðlum. Síðastliðna tvo mánuði hefur Skúli Bragi Geirdal ferðast um landið og haldið rúmlega 100 fræðsluerindi um netöryggi, persónuvernd og miðlalæsi fyrir börn, ungmenni, foreldra og kennara. Við báðum Skúla að koma til okkar í Síðdegisútvarpið og það ætlar hann að gera á eftir og fara yfir það helsta sem við þurfum að hafa í huga.
Ásmundur Einar Daðason menntamálaráðherra var harðlega gagnrýndur á Alþingi í morgun og þess krafist að hann axlaði ábyrgð á slæmu gengi íslenskra nemenda í PISA-könnuninni. Málið var líka rætt í borgarstjórn í gær og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir borgarfulltrúi flokks fólksins kemur til okkar á eftir og ræðir þessi mál en Kolbrún hefur bæði starfað sem skólasálfræðingur og kennari svo hún þekkir vel til í skólamálum og er auk þess með sögu úr barnæskunni sem tengist lestrarkunnáttu.
Í dag verða tímamót í íslenskri bókmenntasögu þegar útgáfuhóf Munnbita Ástarsögufélagsins verður haldið í Húsi máls og menningar. Munnibiti er fyrsta rit Ástarsögufélagsins, en þar skrifa yfir þrjátíu rithöfundar margslungna texta sem allir fjalla á einn eða annan hátt um ástina. Við ætlum að forvitnast um Ástarsöguféagið og Munnbita í þættinum og hingað koma Árni Árnason rithöfundur og Brynja Sif Skúladóttir formaður félagsins.
Við ætlum að heyra af verkefni sem heitir Hallo Hamingja en markmiðið með því verkefni er að leggja lið gegn sívaxandi kvíða, depurð og þunglyndi barna og ungmenna, með að kynna skemmtilega leiki, verkefni og fræðslu, til að auka hamingju, efla innri styrk og vellíðan. Til okkar kemur Elísabet Gísladóttir djákni og félagi í rotary en Rótarýhreifingin styrkir þetta verkefni sem er öllum að kostnaðarlausu.
Á Fitjum í Njarðvík er að finna besta Fish & Chips stað landsins samkvæmt Google. Í einföldu gámahúsi við Reykjanesbrautina leynist ISSI FISH & CHIPS sem heimamenn og ferðamenn sækja til að kæta bragðlaukana. Þar stendur Jóhann Issi Hallgrímsson sem á einmitt afmæli í dag og við hringjum í hann og heyrum um fyrirtækið en vörumerkið hlaut veglega viðurkenningu frá Hugverkastofu fyrr í dag.
En við byrjum á göngugarpnum og vini Síðdegisútvarpsins Ei