Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari glímir við langvinn einkenni Covid en Gunnar veiktist að Covid 19 um jólin 2020 og hefur nú verið greindur með ME sjúkdóminn (síþreytu) Gunnar gagnrýnir heilbrigðiskerfið að engin eftirfylgni sé með þeim sem sitja uppi með langvinnar eftirstöðvar Covid 19 sýkingar og kallar eftir því að vísinda - og heilbrigðisstarfsfólk rannsaki þetta frekar. Gunnar kemur til okkar í þáttinn í dag.
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir að iðnaðarnjósnir séu raunveruleg ógn við íslensk fyrirtæki en netöryggisfræðingar hafa varað við hættulegum hópum netþrjóta sem gera atlögu að íslenskum innviðum og fyrirtækjum til að komast yfir viðkvæmar upplýsingar. Við ætlum að ræða þetta betur á eftir við Sigurð sem mætir í Síðdegisútvarpið.
Út er komin bókin Ég er þinn elskari. Bréf Baldvins Einarssonar til Kristrúnar Jónsdóttur sem skrifuð voru á árunum 1825-1832. Erla Hulda Halldórsdóttir, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði HÍ, ritar ítarlegan inngang um sögu Kristrúnar og Baldvins og bjó bréf hans til prentunar með skýringum og nútímastafsetningu.
Magnús Rannver Rafnsson, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Línudans ehf. kemur í Síðdegisútvarpið í dag strax að loknum fimm fréttum. Magnús setti fram hugmyndir um hraunbrú þegar eldgosið í Fagradalsfjalli stóð sem hæst. Um er að ræða mannvirki, eða stokk, sem lagður er yfir vegi eða lagnir sem Magnús segir að sé sérstaklega hentugur valkostur til að verja hitaveitulagnir og aðra línulega formaða innviði með varanlegum hætti. Við ætlum að ræða þetta fyrirbæri hraunbrú við Magnús hér á eftir og spyrjum hvort þetta sé raunhæfur kostur til að mynda á Reykjanesskaganum þar sem ekkert lát virðist vera á eldsumbrotum.
Það er landsleikur á eftir þegar að karlalið okkar í knattspyrnu mætir hollendingum. Við ætlum að fá til okkar íþróttafréttamennina Almar Ormarrsson og Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson til að hita upp fyrir leikinn.
Veiðimenn ættu að forðast að lyfta laxahrygnum eins og verðlaunagrip úr vatninu því óvarleg meðhöndlun gæti spillt hrognum. Þetta kom fram á verndarráðstefnu sem haldin var á Vopnafirði á dögunum. Við ætlum að ræða við Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðing í dag og fara yfir það með honum hvað ber að varast þegar veitt er til þess að raska lífríkinu sem minnst