Síðdegisútvarpið

Staðan í pólitíkinni, hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar og áhrif snjalltækja og fjölskyldur

Það er líf og fjör í pólitíkinni og við ætlum heyra í Loga Einarssyni þingflokksformanni Samfylkingarinnar á eftir og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni miðflokksins og ræða stöðuna.

Félag íslenskra barnalækna stóð fyrir málþingi á Barnaspítala Hringsins um helgina en þingið var helgað svefnöryggi ungbarna. Sérstakur gestur ráðstefnunnar var Dr. Benjamin Hoffman, bandarískur barnalæknir og forseti bandarísku barnalæknasamtakanna en hann telur Ísland geti verið í fararbroddi þjóða þegar kemur öryggi ungbarna því hér til staðar sterkt félagslegt öryggisnet með ljósmæðrum og hjúkrunarfræðingum. Helga Elídóttir barnalæknir og formaður félags íslenskra barnalækna kemur til okkar og segir okkur frá ráðstefnunni og því helsta sem þar kom fram.

Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2021-2025 lagði þá skyldu á borgina setja saman starfshóp sem myndi leita leiða til draga úr hjólreiðaþjófnaði.

er skýrsla hópsins tilbúin og bæði er þar áhugaverð tölfræði um fjölda þjófnaða og skiptingu, en ekki síður eru þær leiðir sem lagt er til skoðaðar verði til draga úr þjófnaði, ekki síður áhugaverðar. Við æltum ræða þess skýrslu við Birgi Birgisson formann reiðjólabænda á eftir.

Theodor Francis Birgisson klínískur félagsráðgjafi og fjölskylduráðgjafi hjá Lausninni hefur áhyggjur af skammtíma og langtíma afleiðingum óhóflegrar skjánotkunar á fjölskyldur og einstaklinga. Theodor hefur kynnt sér fjölmargar rannsóknir þessu tengt og hann ætlar vera á línuni hjá okkur á eftir og ræða þessi mál við okkur.

Vaga, nýr gönguhópur fyrir konur á öllum aldri, mun hefja göngu sína á miðvikudag. Hópurinn mun fara saman í gönguferðir allan ársins hring og standa fyrir viðburðum. Saga

Líf Friðriksdóttir, leiðsögukona og stofnandi ferðafyrirtækisins Viking Women segir okkur betur frá þessu á eftir.

En við byrjum niðrá Alþingi þar er Höskuldur Kári Schram fréttamaður.

Frumflutt

8. apríl 2024

Aðgengilegt til

8. apríl 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þættir

,