Vatnspósturinn á Aðalstræti í miðborg Reykjavíkur hefur verið laskaður síðustu tuttugu og fimm árin, en Stefán Pálsson vill að gert verði við hann, enda sögulegar minjar. Sagnfræðingurinn kemur til okkar og fer yfir merka sögu vatnspóstsins.
Plöntuáhugafólk og blómaunnendur eru hvött til að koma og gera skipti á blómum og græðlingum á Borgarbókasafninu í Árbæ á sunnudaginn. Á Plöntuskiptimarkaðnum er upplagt tækifæri fyrir þau sem eiga umfram, að deila með öðrum – og ekki síður að spjalla við aðra ræktendur um umhirðu plantnanna og þetta skemmtilega áhugamál. Katrín Guðmundsdóttir er skiptastjóri eða fer fyrir þessum viðburði og við heyrum í henni hér á eftir.
AkureyrarAkademían stendur fyrir opnu málþingi í Hofi á Akureyri í tilefni af því að á þessu ári eru 80 ár frá því að lýðveldi var stofnað á Íslandi þann 17. júní 1944. Á málþinginu mun fræðifólk og almenningur eiga samræður og skoðanaskipti um stöðu og þróun lýðveldis og lýðræðis á Íslandi. Hvernig hefur tekist til? Hvaða lærdóma má draga? Sigurgeir Guðjónsson, stjórnarformaður AkureyrarAkademíunnar verður á línunni.
Hverskonar forseta vill unga fólkið? Þegar stórt er spurt. Landssamband Ungmennafélaga ásamt JCI á Íslandi halda viðburðinn "Völd óskast: Forseti allra kynslóða?" í Iðnó núna á sunnudag. Sylvía Martinsdóttir, formaður félagsins, kemur til okkar.
Jazzþorpið í Garðabæ er djasshátíð sem hóf göngu sína í fyrra á Garðatorgi í Garðabæ. Hún er nú haldin í annað sinn um komandi helgi og hefst með opnun kl. 18.00 á morgun föstudag. Listrænn stjórnandi Jazzþorpsins er gítarleikarinn knái Ómar Guðjónsson en fær til liðs við sig marga af bestu jazztónlistarmönnum landsins á hátíðina. Ómar verður hér hjá okkur og segir okkur frá.
Við byrjum á kíghósta. Börn greind með kíghósta hafa verið lögð inn á spítala hér á landi síðustu vikur en alls hafa sautján greinst með sýkinguna undanfarið. Guðrún Aspelund, sóttvarnarlæknir er á línunni.