Félagið Þjóðarhöll ehf. var stofnað í gær af ríkinu og Reykjavíkurborg. Félagið á að standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal. Samningur ríkisins og borgarinnar var undirritaður af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, og Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Ásmundur Einar kemur til okkar á eftir og segir okkur frá því hvað felst í þessu og hver séu næstu skref.
Isavia hefur gert breytingar á gjaldheimtu á leigubílastæðinu við Leifsstöð sem tóku gildi 8.janúar síðastliðinn. Stakt gjald fyrir innakstur á stæðið helst óbreytt en árskort standa ekki lengur til boða. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia verður á línunni hjá okkur á eftir og við spyrjum hann út í þetta og aðrar breytingar sem gerðar hafa verið á bílastæðamálum á Keflavíkurflugvelli
Senn fer að ljúka kynningu á tillögum að nýju hverfisskipulagi fyrir Háteigshverfi, Hlíðahverfi og Öskjuhlíðarhverfi. Þessi kynning hófst 16. nóvember á síðasta ári og er áætlað að henni ljúki fyrir lok janúar. Rólegt hefur verið í kringum tillögurnar hingað til og í gær fór fram leiðsögn um sýningu á tillögunum í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni. Við ætlum að fá Ævar Harðarson deildarstjóra Hverfisskipulags Reykjavíkur og arkitekt til að fara aðeins yfir þessar töllögur að nýja hverfisskipulaginu með okkur og segja okkur hvers vegna það er brýnt að íbúar þessara hverfa láti sig málið varða.
Þeir eru margir sem spreytt sig hafa á Bubba bæði í tali og tónum. Bubbi hefur haft gríðarlega mikil áhrif á marga og einn þeirra er Bjarni Ómar Haraldsson tónlistarmaður en hann er einn af þeim sem tilheyrir hópunum Alþýðububbi - Bjarni kemur til okkar á eftir og segir okkur frá átrúnaðargoðinu og við frumflytjum lag með Bjarna sem upphaflega var flutt af Bubba en nú í búningi Bjarna.
Hópur sem kallar sig Hugmyndasmiði eru að gefa út bókina "Frábær hugmynd" henni er ætlað að virkja börn í nýsköpun. Einnig verða frumsýndir sjónvarpsþættir á Rúv um helgina sem teknir eru í Elliðadalnum. Textahöfundur bókarinnar Eva Rún Þorgeirsdóttir kemur til okkar á eftir og segir okkur betur frá.
Hótel Rangá hlaut nýlega viðurkenningu, sem besta sveitahótel í heiminum, sem veitt er af hótelkeðjunni Small Luxury Hotels of the World (SLH). Hótelstjórinn á hótel Rangá heitir Friðrik Pálsson og við hringjum í hann
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-01-12
ÁSGEIR TRAUSTI - Leyndarmál.
Herbert Guðmundsson Tónlistarm. - Þú veist það nú.
AL GREEN - Let's stay together.
COLDPLAY - Talk.
Bríet - Esjan.
Una Torfadóttir - Þú ert stormur (Pride lagið 2023).
JÓNAS SIG - Vígin falla.
Ásgeir Trausti Einarsson - Part of me.
Axel Flóvent - When the Sun Goes Down.
Malen - Right?.
HJÁLMAR - Manstu.
Bryan, Zach, Musgraves, Kacey - I Remember Everything.