Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri SAFT – Netöryggismiðstöðvar Íslands skrifaði áhugaverða grein á Vísi þar sem hann fjallar um hvers hversu háð við erum símanum okkar og hversu erfitt við virðumst eiga með að leggja hann frá okkur. Skúli spyr: Skortir okkur sjálfsstjórn eða felst svarið mögulega að einhverju leyti í hönnun tækisins sem vekur okkur að morgni og heldur okkur frá því að fara að sofa að kvöldi? Við ætlum að ræða þessar áhugaverðu pælingar við Skúla hér rétt á eftir.
Við ætlum að heyra af verkefni á eftir sem heitir 100 stories from Iceland en verkefnið felur í sér að dreifa 100 frábærum sögum um Ísland,og vekja þannig athygli á ágæti ferðaþjónustunnar á erlendri grundu. Verkefnið er unnið af Pipar/Engine í samvinnu við Íslandsstofu fyrir ferðaþjónustu á Íslandi og þau sem ætla að segja okkur betur frá þessu heita Hreggviður Steinar Magnússon ,leiðtogi í stafrænni markaðssetningu og Lára Ómarsdóttir leiðtogi almannatengsla hjá Pipar koma til okkar á eftir
Við ætlum að fá til okkar Gunnhildi Jakobsdóttur yfiriðjuþjálfa Æfingastöðvarinnar til að segja okkur frá starfi stöðvarinnar þar sem stuðst er við dýr í endurhæfingu fyrir börn en hlutverk Endurhæfingarstöðvarinnar er að efla börn og ungmenni til almennrar þátttöku með það að marki að bæta lífsgæði þeirra. Og þar starfar teymi sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa og þar hefur í tæp 18 ár verið starfrækt íhlutun með aðstoð dýra. Við ætlum komast að því hvernig sú íhlutun fer fram hér á eftir.
Barnamenningarhátíð hefst í Reykjavík á morgun og stendur til 28. apríl. Í ár er þema hátíðarinnar lýðræði og verður lögð sérstök áhersla á viðburði sem tengjast lýðræði
Hátíðin fer fram um alla borg og býður upp á stórar og smáar sýningar og viðburði sem unnir eru fyrir börn eða með börnum. Börn sýna verkin sín á virtum menningarstofnunum og taka að miklu leyti yfir menningarlíf borgarinnar þessa sex daga sem hátíðin stendur yfir. Björg Jónsdóttir er verkefnastjóri barnamenningarhátíðar hún kemur til okkar og segir okkur betur frá.
Í kvöld fer fram hörku leikur í Subway deild karla í körfubolta þegar að Valur og Höttur takast á í fjórða leik liðanna í átta liða úrslitum, og staðan er 2-1 fyrir Val. Það er allt undir og leikurinn fer fram í höllinni á Egilsstöðum.
Sigríður Sigurðardóttir stjórnmarmaður í körfuknattleiksdeild Hattar verður í sambandi við okkur á eftir.
Einfaldara og réttlátara örorkulífeyriskerfi var kynnt á fundi Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, sem fram fór í Safnahúsinu við Hverfisgötu, betur þekkt sem Þjóðmenningarhúsinu, fyrr í dag. Yfirskrift fundarins var „Öll með“.Fyrirhugaðar breytingar fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi. Guðmundur Ingi kemur til okkar í dag