Hvernig í ósköpunum eigum við að halda í neistann og rómantíkina yfir sumarleyfistímann? Þegar allir fjölskyldumeðlimir eru heima með tilheyrandi látum og veseni, er þá yfir höfuð pláss fyrir parsamböndin og nándina, eða er þetta einfaldlega tími fjölskylduheildarinnar? Theodór Francis Birgisson er klínískur félagsráðgjafi með áherslu á fjölskyldu- og hjónabandsráðgjöf. Hann ræddi við okkur.
Barnadjass í Mosó er skemmtileg tónlistarhátíð sem hefst í Mosfellsbæ á morgun og stendur yfir helgina. Flytjendur eru á aldrinum 7-15 ára og koma frá höfuðborgarsvæðinu, Ísafirði, Noregi og Færeyjum. Auk þess sem þau hafa rætur m.a. í Afganistan, Hollandi, Kína, Nígeríu, Palestínu, Litháen og Svíþjóð. Guðrún Rútsdóttir er á fullu í undirbúningi hátíðarinnar og sagði okkur betur frá þessari veislu í Mosfellsbæ.
SOFF kallast sérhæfður loftslagssjóður Sameinuðu þjóðanna sem styður við uppbyggingu veðurathugana í smærri löndum. Veðurstofa Íslands verður eflaust ein þeirra stofnana sem gegnir stóru hlutverki í gagnaöflun þegar kemur að loftslagsmálum. Hildigunnur H. H. Thorsteinsson er nýskipaður forstjóri Veðurstofu Íslands, tók við núna 1. júní og hún fræddi okkur örlítið um loftslagssjóðinn og verkefni Veðurstofunnar.
EM í knattspyrnu er auðvitað á fullri ferð og búið að vera stórskemmtileg veisla hingað til. Mikið um óvænt úrslit og alls konar uppákomur. Frá og með gærdeginum höfðu allar keppnisþjóðirnar leikið og sýnt sig á stóra sviðinu og til þess að fara yfir helstu tíðindin og frekari spár fengum við Hjörvar Hafliðason sem er eins konar doktor í fótboltafræðum.
Og loks rétt eins og allflesta miðvikudaga þá slógum við á þráðinn til Björns Malmquist sem staddur í Brussel.