Eldur kviknaði í kauphöllinni, Børsen, í miðborg Kaupmannahafnar rétt fyrir klukkan átta í morgun en byggingin er ein sú elsta í borginni og var byggð árið 1625. Hún hýsti áður kauphöllina en þar eru nú höfuðstöðvar viðskiptaráðs.
Menningarmálaráðherra Danmerkur segir fjögur hundruð ár af danskri menningu hreinlega standa í ljósum logum. Hún Halla Benediktsdóttir umsjónarmaður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn, verður á línunni.
Sjö nemendur útskrifast úr kokkanámi í vor en þyrftu að vera 40 til að anna eftirspurn veitingageirans. Þetta segir framkvæmdastjóri hótel- og matvælaskóla Menntaskólans í Kópavogi. Veitingamenn hafa áhyggjur af þessari þróun en dregið hefur verulega úr umsóknum um kokkanám síðustu ár. Haraldur Jóhann Sæmundsson ræðir við okkur um þessa þróun.
Þessa dagana eru salmonella og listería dálítið mikið í umræðunni meðal annars vegna gruns um salmonellusmit í kjúklingi frá Matfugli. Fréttir um tíðni sýkinga af völdum listeríu fara ört vaxandi í Evrópu. Sæmundur Sveinsson fagstjóri og sérfræðingur í greiningum á ýmsum matbornum sjúkdómum, ætlar að fara yfir þessa ískyggilegu þróun með okkur.
Reiðhjólabændur safna gömlum hjólum, gera við þau og gefa fólki sem á annars litla möguleika á að eignast reiðhjól. Þetta gera bændur í samstarfi við Barnaheill. Reiðhjólabóndinn Birgir Birgsson kemur til okkar og talar um þetta frábæra verkefni.
Ísland heldur heimsmeistaramótið í handbolta árið 2031. Þetta er augljóslega metnaðarfullt verkefni sem kallar á flókinn undirbúning. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður fer yfir þessi mál með okkur.
En fyrst þetta: Mannréttindadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að íslenska ríkið hafi brotið gegn réttinum til frjálsra kosninga og skilvirkra réttarúrræða við alþingiskosningar 2021, en úrskurður dómstólsins var kveðinn upp í morgun. Þetta birtist helst í því að frambjóðendur sem virtust vera inni á þingi, duttu út eftir endurtalningu, eða níu þingmenn í það heila og hafði það víðtæk áhrif á flokka. Meðal þeirra var Guðmundur Gunnarsson sem var í framboði fyrir Viðreisn. Hann er hérna hjá okkur.