Fulltrúar minnihluta bæjarstjórnar Akureyrar segja að allt útlit sé fyrir að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og L lista í bæjarstjórn ætli sér að snuða launþega um kjarabót sem flestir íbúar landsins hafa nú þegar fengið. Fólk hafi samþykkt kjarasamninga með mjög hóflegum launahækkunum í þeirri trú að þeirra sveitarfélag myndi standa við gefin loforð og lækka gjaldskrár sveitarfélaga er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu. Við hringdum norður og heyrðu í Hildi Jönu Gísladóttur oddvita Samfylkingarinnar.
Í ár eru 25 ár síðan Sagan af bláa hnettinum kom út en um er að ræða barnabók eftir íslenska rithöfundinn Andra Snæ Magnason, myndskreytt af Áslaugu Jónsdóttur. Bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár og hún kom út eða 1999 fyrst allra barnabóka og vinsælt leikrit, Blái hnötturinn, var gert eftir bókinni og það sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2001 auk þess sem það hefur verið sýnt víðsvegar um heiminn og bókin hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál. Höfundurinn Andri Snær kom til okkar í þáttinn
Sprotafyrirtækið Opus Futura hefur smíðað ráðningarlausn sem breytir því hvernig fyrirtæki og einstaklingar tengjast. Markmið lausnarinnar er að veita einstaklingum tækifæri til að parast við öll laus störf, óháð því hvort þeir eru í atvinnuleit eða ekki, án þess að þurfa að ganga í gegnum tímafrekt umsóknarferli. Helga Jóhanna Oddsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Opus Futura kom í Síðdegisútvarpið
Í sumar líkt og sl. fimm ár hefur staðið yfir fornleifauppgröftur í Firði í Seyðisfirði, Þarna hafa fundist fleiri þúsund gripir litlir sem stórir sem talið er að séu frá árunum 940-1100. En hvaða gripir eru þetta og um hvaða landnámsbæ er um að ræða? Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur sagði okkur allt um það.
En við byrjuðum á Jóni Inga Hákonarsyni oddvita Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar en hann skrifaði áhugaverða grein sem birtist á Vísi sem hefur yfirskriftina: Það er hægt að lækka byggingarkostnað á Íslandi. Þessi grein byrjar á sögu af ungum manni sem reynir að komast inn á fasteignamarkaðinn á Íslandi.