Í dag birtist grein á vísi sem hefur yfirskriftina Látum verkin tala. Höfundur hennar er Tómas A Tómasson þingmaður Flokks fólksins og þar skrifar hann að sér hafi verið hugleikið frá því hann byrjaði á þingi árið 2021 hversu mikið þingmenn eigi að tjá sig og hlusta á aðra þingmenn tjá sig á meðan lítil áhersla sé lögð á að framkvæma þá hluti sem endalust er verið að tala um. Nefnir hann sem dæmi starfshóp sem hafi verið á undirbúningsstigi í níu ár og snýr að afnámi vasapeningafyrirkomulags eldri borgara sem flytjast á hjúkrunarheimili og eru sviptir fjárræði en fái í staðinn vasapeninga sem duga varla upp í nös á ketti. Við ræddum vasapeningafyrirkomulagið við Helga Pétursson formann Landssambands eldri borgara.
Íslenska kokklandsliðið fékk gull fyrir fyrstu keppnisgreinina sem það keppti í á Ólympíuleikunum í Stuttgart í gær en liðið hélt út til Þýskalands á fimmtudaginn var. Við forvitnumst meira um sigurinn í gær og hvað framundan er hjá liðinu hjá Þóri Erlingssyni forseta Klúbbs matreiðslumeistara sem á og rekur kokkalandsliðið.
Vertu með í Edrúar. Edrúar febrúar. SÁÁ hvetur landsmenn til þess að prófa Edrú lífstíl í febrúar og fá sem flesta til að finna það á eigin skinni hvað það er gott að sleppa því að neyta áfengis, amk í Edrúar. Þessu tengt ætlum við að fá til okkar á eftir þrjá einstaklinga, þau eru öll góðir vinir og tvö þeirra eru hjón en það sem þau eiga öll sameiginlegt er að hafa ákveðið að hætta að drekka upp á sitt eindæmi og líkar vel. Þau Guðmundur Má Ketilsson, Monika Emilsdóttir og Karl Jónas Smárason kíktu í kaffi.
Knattspyrnulið Vestra á Ísafirði munu þreyta frumraun sína í efstu deild karla, Bestu deildinni þegar hún hefst í vor og gerði liðið samstarfssamning við bæinn þess efnis að tryggt verði að liðið gæti æft um vetrarmánuðina og að nýtt gervigras yrði sett á heimavöllinn þeirra á Torfnesi. Nú hafa bæjaryfirvöld hafnað ósk Vestra-manna um að þeir annist vallarsvæðið og við heyrðum í Samúel Samúelssyni formanni meistaraflokksráðs Vestra um stöðu mála.
Konur voru í fararbroddi í helstu flokkum við afhendingu Grammy-verðlaunanna í gær. Taylor Swift varð þá fyrsta manneskjan í sögu verðlaunahátíðarinnar til að hljóta verðlaun fyrir breiðskífu ársins fjórum sinnum og Laufey okkar Lín hlaut verðlaunin fyrir plötu sína, Bewitched, í flokki hefðbundinna söng-poppplatna. Ingunn Lára Kristjánsdóttir fréttamaður vakti og horfði á Grammy í nótt og sagði okkur frá því helsta.
Í tilkynningu frá almannavörnum í morgun kom fram að yfir 1.000 manns gætu heimsótt heimili sín í Grindavík í dag til að vitja eigna sinna og verða um 400 bílar í hverju tímahólfi. Kvika undir Svartsengi er nú um 9 milljónir rúmmetrar og því að sama magni og þegar gaus 14. janúar. Við tókum stöðuna með Hjördísi Guðmundsdóttur samskiptastjóra hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.