Nokkur umræða hefur átt sér stað vegna áforma Bandaríkjamanna um miklar öryggisráðstafanir við húsið að Sólvallagötu 14 en það mun verða framtíðarbústaður sendiherra bandaríkjanna á Íslandi. Tæplega 80 íbúar úr nágrenninu skrifuðu undir harðorð mótmæli gegn þessum breytingum og segja þær ekki falla að friðsælu og þéttbýlu íbúahverfi. Í tilkynningu frá bandaríska sendiráðinu segir að við alla hönnun hafi sérstaklega verið horft til þess að gæta samræmis við sögulegt og fallegt umhverfi Reykjavíkur. Halla Helgadóttir er ein þessara íbúa sem hafa mótmælt fyrirhuguðum breytingum og hún kom til okkar í gær og ræddi þessi mál en í dag kemur til okkar Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata og formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur.
Á Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ opnar í dag sýning er kallast Fallegustu bækur í heimi 2023. Alþjóðleg keppni um bestu bókahönnunina hefur verið haldin frá árinu 1963 með það að markmiði að hvetja til aukins alþjóðlegs samtals um bókahönnun og í ár bárust í keppnina um það bil 600 bækur frá 30 löndum. Fjórtán bækur hlutu verðlaun og samanstendur sýningin af þessum bókum sem gestum er velkomið að fletta. Við fáum grafíska hönnuðinn og stjórnarmeðlim Félags íslenskra teiknara, Anton Jónas Illugason, til þess að segja okkur frá sýningunni og hvað bók þurfi að bera til þess að komast í hóp fallegustu bóka í heimi.
Undirbúningsfasi er nú að hefjast fyrir byggingu móttöku- og förgunarmiðstöðvar fyrir koldíoxíð (CO2), CODA Terminal, sem staðsett verður í Straumsvík og mun farga allt að 3 milljónum tonna af CO2 á ári hverju. Miðstöðin verður fyrsta sinnar tegundar á heimsvísu en hún mun taka á móti CO2 sem flutt verður hingað til lands frá N-Evrópu. Gert er ráð fyrir að um 600 bein og afleidd störf skapist við uppbyggingu og rekstur miðstöðvarinnar. Ólafur Elínarson sem leiðir samskiptamál hjá Carbfix kemur til okkar á eftir og segir okkur betur frá.
Söngleikinn Fiðlarann á þakinu þekkjum við mörg en hann var frumsýndur á Broadway 1964 og vinsæl kvikmynd útgefin 7 árum síðar. Söngleikurinn er meðal þeirra sem oftast hefur verið settur upp á heimsvísu enda er tónlistin létt og skemmtileg og mörgum kunn. Litli leikklúbburinn á Ísafirði mun frumsýna Fiðlarann á þakinu 1. febrúar og þar mun annast hlutverk mjólkurpóstsins Tevje, Bergþór Pálsson. Við heyrum í Bergþóri sem er jafnframt skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar sem tekur stóran þátt í uppfærslunni.
Tónleikar til heiðurs Agli Ólafssyni verða haldnir í Hörpu næstu helgi, eða föstudagskvöldið 26. nóvember. Þar sem farið verður yfir glæstan feril eins okkar fremsta tónlistarmanns. Flutt verða lög og tónverk Egils í spariklæðnaði, þar sem Guðni Franzson stýrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og söngvarinn Eyþór Ingi stígur á stokk ásamt hljómsveitinni Babies. Heiðurstónleikarnir er liður í menningarbrú Hörpu og menningarhússins Hofs á Akureyri en þar fóru tónleikarnir fram seint á síðasta ári. Við fáum Eyþór Inga til að segja okkur lítillega frá tónleikunum.
Fyrir nokkru síðan auglýsti sveitarfélagið Skagafjörður eftir nýjum umsjónarmanni með Málmey á Skagafirði. Málmey er stærsta eyjan á Skagafirði, um 160 ha að stærð. Það er skemmst frá þvi að segja að byggðarráð hefur samþykkt að velja Björgunarsveitina Gretti á Hofsósi úr hópi umsækjenda sem umsjónaraðila Málmey í Skagafirði, til 5 ára, og felur sveitarstjóra að útbúa samning þess efnis á milli aðila sem lagður verði fyrir byggðarráð til samþykktar. En hvað felst í því að vera umsjónarmaður heillar eyjar ? Eiríkur Frímann er formaður björgunarsveitarinnar og við hringjum í hann.