• 00:05:54Bergur Þór - leikveturinn hjá LA
  • 00:23:19Harpa Magnúsd. - Hoobla 5 ára
  • 00:34:06Sigrún Tinna Sveinsd. - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Leyft öllum aldurshópum

Bergur Þór Ingólfsson frá LA, hvað er Hoobla? og lesandinn Sigrún Tinna Sveinsdóttir

Við héldum áfram yfirferð okkur um leiksvið landsins, hvað verður á fjölum þeirra þennan leikvetur. Nú var komið að Leikfélagi Akureyrar, Bergur Þór Ingólfsson leikhússtjóri kom til okkar og fór með okkur yfir það sem er framundan hjá þeim, meðal annars 120 ára afmælissýning samkomuhússins, þar sem LA hefur verið til húsa og óteljandi sýningar hafa verið settar upp í og margt fleira.

Við kynntumst svo fyrirtæki sem heitir Hoobla, en það er vettvangur þar sem fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög hafa aðgang að neti sérfræðinga, stjórnenda og ráðgjafa til að ráða í tímabundin verkefni, sem sagt eins konar umboðsskrifstofa fyrir fagfólk sem kýs að vinna í því sem hefur verið kallað gigg vinnumarkaðurinn eða hagkerfið. Hoobla er fimm ára um þessar mundir og stofnandi þess, Harpa Magnúsdóttir sagði okkur aðeins betur frá því.

Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigrún Tinna Sveinsdóttir, sem var í beinu sambandi frá Nýju Delí á Indlandi, en hún vinnur fyrir utanríkisþjónustuna þar. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Shuka Saptati, Seventy Tales of the Parrot, höfundur óþekktur

Saga af svartri geit e. Perumal Murugan

Shattered Lands: Five partitions and the making of modern Asia e. Sam Dalrymple

Ráðuneyti æðstu hamingju e. Arundhati Roy

A Fine Balance e. Rohinton Mistry

Tónlist í þættinum:

Jambalaya / Carpenters (Hank Williams)

Ég labbaði í bæinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jóhann Helgason, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)

Entre Amigos / Stan Getz og Big band Bossa Nova (Gary Mcfarland)

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,