Mannlegi þátturinn

kynferðisofbeldi í samböndum ungmenna, Hrafnhildur Reykjalín um gildi og lokakafli mannlegra samskipta

Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stöðum á landinu þar sem rætt var um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna og það sem þar kom fram á þessum þingum er vægast sagt sláandi.

Hrafnhildur Reykjalín er starfandi heilsuráðgjafi á Akureyri, hún er kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Í jákvæðri sálfræði og markþjálfun er unnið markvisst með gildi sem grunn vellíðan og stefnu í lífinu. Hrafnhildur sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag.

Svo var komið síðasta skiptinu í bili sem Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar til ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki þjóna okkur.

Tónlist í þættinum í dag:

Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason

Mig dreymir / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik Guðnason)

Kastað á glæ / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason)

Þér við hlið / Regína Ósk Óskarsdóttir (Magnús Þór Sigmundsson, texti Trausti Bjarnason)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

30. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,