• 00:07:11Íris Tanja og Fannar frumsýna Ungfrú Ísland
  • 00:26:47Daðey Albertsdóttir - snjallsímanotkun barna

Mannlegi þátturinn

Íris Tanja og Fannar um Ungfrú Ísland og Daðey um snjallsímanotkun

Leikararnir Íris Tanja Flygenring og Fannar Arnarsson komu í þáttinn í dag, en þau leika bæði í sýningunni Ungfrú Ísland, sem unnin er upp úr samnefndri verðlaunaskáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, sem frumsýnd verður í næstu viku í Borgarleikhúsinu. Sagan er um Heklu, unga konu á Íslandi og þann veruleika sem hún bjó við um miðbik síðustu aldar, þar sem það verða rithöfundur og vera til á eigin forsendum virtist utan seilingar fyrir fyrir unga konu.

Áhrif snjalltækja og samfélagsmiðla á líf okkar eru gríðarleg og ekki síst á ungu kynslóðirnar. Afleiðingar þessa geta verið alvarlegar, ekki síst þegar kemur börnum og unglingum, ef aðgengið er óheft. Daðey Albertsdóttir, sálfræðingur á Geðheilsumiðstöð barna HH og Domus Mentis Geiðheilsustöð, fór yfir stöðuna með okkur í dag. Af hverju foreldrar ungra barna ættu fresta því gefa þeim snjallsíma. Góð ráð til þeirra sem vilja gefa börnum sínum snjallsíma um hvernig best standa því og svo góð ráð til foreldra barna sem eiga þegar snjallsíma og eru hugsi yfir notkun barna sinna á tækjunum. Daðey skrifaði greinina ásamt Silju Björk Egilsdóttur og Skúla Braga Geirdal.

Tónlist í þættinum:

Stingum af / Bjartey Sveinsdóttir og Guðný Gígja Skjaldardóttir (Örn Elías Guðmundsson)

Vegbúinn / Elín Ey og hljómsveit úr Óskalög þjóðarinnar (Kristján Kristjánsson - KK)

Þannig týnist tíminn / Páll Rósinkranz (Bjartmar Guðlaugsson)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

9. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

(Aftur í kvöld)

Þættir

,